2.1.2008 | 16:36
Linur Nagli
Það hefur áður komið fram hér á síðunni að öl er böl enda örsjaldan sem Naglinn teygar mjöðinn.
Það var þó gert á gamlárskvöld og galeiðan stunduð langt fram á nýársdagsmorgun.
Mataræði nýársdags verður ekki rætt hér, því Naglinn er á fullu að bæla þann dag og allar sjö billjón kaloríurnar niður í undirmeðvitundina.
Djammið, sykurinn, svefnleysið og ólifnaðurinn sagði líka aldeilis til sín í ræktinni í dag.
Brennslan í morgun fer í sögubækurnar sem sú slappasta og frammistaðan á brjóst-æfingu seinnipartinn var vægast sagt ömurleg.
Reyndar svo ömurleg að Naglinn upplifði martröð hvers lyftingamanns.
Átti ekki séns í síðasta repsið í bekkpressunni og enginn að spotta.
Með stöngina boraða ofan í nýársbumbuna lá Naglinn eins og hvalur á þurru landi og gat sig hvergi hrært og lítið andað.
Maðurinn í bekknum við hliðina miskunnaði sig yfir Naglann og bjargaði frá ótímabærum dauðdaga.
Blóðrauð af skömm og súrefnisskorti reyndi Naglinn að afsaka sig við manninn en skömmin var samt á stærð við Síberíu því salurinn var fullur af fólki sem vafalaust urðu vitni að þessu atriði.
Ætli Naglinn megi ekki búast við fullt af hæðnisbréfum inn um lúguna næstu daga.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
sæl mig langaði að forvitnast..það eru svo margir sem stíflast af prótein inntöku...veistu um eitthvað sem hægt er að gera við því ??
bara ég (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 19:49
Ég er nokkuð viss um að þó þú frænka góð hafir lent í smá klikki í dag þá er ég nokkuð viss um fólkið sem var að horfa hefur átt þó nokkur svona klikk
Við ofurmennin verðum að eiga svona daga af og til svo venjulega fólkið sjái að við erum bara mannleg
Fannar Karvel (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 21:31
Jahérna elsku Naglinn minn. Ég held að ef einhver hefur verið að fylgjast með þér þarna í ræktinni og hlakkað yfir óförum þínum, þá er ástæðan líklega fyrst og fremst öfund yfir frábærri frammistöðu þinni á öðrum stundum Mér finnst þú aftur á móti bara hetja að mæta yfir höfuð í ræktina í þessu "ástandi".
Óla Maja (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 22:30
Elsku naglinn minn. Ég sá þig í ræktinni í dag og gerði mitt besta til að ná augnkontakti en alltaf fórum við á mis. Isssss..þú brennir burt sykrinum á no-time..eins dugleg og þú nú ert! Og þú lítur rosalega vel út! Og það eiga allir við sama samviskubitið að glíma eftir hátíðirnar, ég er ekkert skárri sko..nema síður sé. Ætla ekkert frekar en þú að ræða hvað ég hef hesthúsað miklu síðasta mánuðinn! Og nú er bara að taka á honum stóra sínum og byrja upp á nýtt - ekki satt?! GLEÐILEGT ÁR OG ÁRAMÓTAKNÚS!!!!
Ester Júlía, 2.1.2008 kl. 22:58
Smá pæling; um daginn skrifaðir þú að þú hefðir "verið feit einu sinni"... hvað segir þú um þessar vangaveltur fólks í sambandi við "umfram skinn"? Held að það sé aðallega vandamál ef fólk léttist mikið/hratt en sumir segja að húðin jafni sig aldrei og því sé skurðaðgerð eina leiðin á meðan aðrir halda því fram að ef þú bara kemst í fantaform þá fylgi húðin með!? Rakst t.d. á þessa lesningu; http://www.bodyfatguide.com/LooseSkin.htm
Óla Maja (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 00:01
Þakka þér fyrir tipsin Helgi, en ég nota aldrei klemmur yfirhöfuð. Það neyðir mann til að hafa stöngina beina allan tímann í lyftunni. Ég lenti einu sinni í því sama þegar ég bjó í UK og reddaði mér einmitt út úr því með því að velta lóðunum af. Maður er samt eins og hálfviti í öllu því veseni .
Ester! Sorrý að ég hafi ekki tekið eftir þér í gær. Ég hef einmitt oft verið skömmuð fyrir að taka ekki eftir fólki í ræktinni, er alveg hrikalega einhverf alltaf á æfingu og fókusa bara á lóðin og tek ekki eftir fólkinu í kringum mig.
Fannar! Takk fyrir hughreystinguna, við erum auðvitað ofurmenni og ofurmennin verða víst líka timbruð og mygluð .
Óla Maja! Ég hef sáralitla þekkingu á "umfram skinni", lenti ekki í því sjálf þegar ég grenntist. Eina sem ég hef heyrt er að því eldri sem maður er þegar maður grennist því erfiðara er að fá húðina til að fara til baka því hún missir teygjanleikann með árunum.
bara ég! Ef þú stíflast þá ertu ekki að borða nóg af trefjum. Passaðu að borða nóg af trefjaríku grænmeti eins brokkolí, blómkáli, zucchini, aspas, spínati og hörfræjum. Eins er gott að bæta smá Husk við mataræðið, en það eru bara trefjar og fæst í apótekum. Trefjar hreinsa til í ristlinum og hjálpa til við meltingu.
Ragnhildur Þórðardóttir, 3.1.2008 kl. 10:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.