27.1.2008 | 20:55
If you fail to prepare, you prepare to fail
Í framhaldi af síðasta pistli vil ég hamra á mikilvægi þess að undirbúa máltíðir dagsins fyrirfram. Það er ekki ofsögum sagt að "If you fail to prepare, you prepare to fail". Ef hungrið mikla sækir að á miðjum vinnudegi eða ef við erum að ferðast og við erum ekki undirbúin með hollt nesti, þá er oft eina úrræðið sjoppan á horninu eða mötuneyti þar sem kokknum er nett sama um þínar hollustuþarfir og notar transfitusýrur í matseldina eins og þær séu að fara úr tísku. Það er því oft óhjákvæmilegt að í örvæntingunni grípum við í eitthvað sem er ekki á planinu. Með því að fjárfesta í Tupperware boxum, og vera skipulagður má koma í veg fyrir að hitaeiningar úr óbjóði fái að svamla um okkar hreina skrokk. Flestir hafa aðgang að ísskáp og örbylgjuofni í vinnunni. Fyrir ferðalögin er kælitaska vegleg fjárfesting. Epli, appelsínur, banana, kotasæla, skyr, hnetur og möndlur eru allt hollt og gott snakk milli mála sem ekki tekur mikið pláss í ísskápnum í vinnunni eða kælitöskunni Mörgum vex það í augum að búa til nesti, og Naglinn hefur heyrt ófáar athugasemdir um að það sé svo tímafrekt. En undirbúningur máltíða þarf ekki að taka langan tíma. Til dæmis má grilla nokkrar bringur í Foremanninum fyrir vikuna á sunnudagskvöldi og geyma í Tupperware inni í ísskáp. Þá er auðvelt að kippa einni með á hverjum morgni. Enga stund tekur að búa til túnfisksalat úr horuðum sýrðum eða skyri, sem má svo geyma í ísskápnum eða í kælitösku. Eins má sjóða stóran skammt af hýðishrísgrjónum í einu, og skófla út einum skammti þegar þess þarf. Sætar kartöflur má líka sjóða nokkrar í einu og geyma í kæli í nokkra daga og skella svo í örrann þegar á að neyta þeirra. Eggjahvítupönnsur tekur enga stund að gera, og hægt að gera nokkrar í einu á morgnana fyrir vinnu eða á kvöldin fyrir næsta dag. Þeim má líka skella í örrann eða borða kaldar. Eitt sem er betra að gera samdægurs er að gufusjóða grænmeti, og búa til salat. Ef salat eða gufusoðið grænmeti er geymt of lengi verður það gegnsósa og miður geðslegt til átu. Sniðugt er að geyma salat í poka í ísskápnum í vinnunni. Best er að áætla hve margar máltíðir eru inni í vinnudeginum, ferðalaginu, eða hverjum þeim aðstæðum þar sem við erum fjarri heimahögunum, og búa til jafnmargar máltíðir og jafnvel eina aukalega til að vera undirbúin, til dæmis ef þarf að vinna yfirvinnu, eða seinkun verður á flugi. Hugsum eins og skátarnir: Ávallt viðbúin!!
Spurt er
Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Var einmitt í gær að undirbúa nesti vikunnar með því að sjóða slatta af brúnum hrísgrjónum og skipta í fimm litla skammta sem ég geymi svo bara inni í ísskáp og kippi með mér út á morgnanna.
Algjör snilld að gera þetta svona og sparar fullt af tíma
Kristín Birna (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 08:27
Akkúrat, og tekur ekkert svo langan tíma heldur, klukkutíma í mesta lagi að preppa fyrir vikuna. Ég meina hvað er maður svosem að gera merkilegt á sunnudagskvöldi? Allavega á ég ekkert félagslíf og finnst bara gaman að svitna yfir pottum og pönnum .
Ragnhildur Þórðardóttir, 28.1.2008 kl. 08:49
Svo held ég líka að þetta sé hagkvæmara fyrir budduna, þó t.a.m. kjúklingabringur teljist munaðarvara. Mun hagkvæmara að vera "ávallt viðbúin" með hollmeti (tala nú ekki um ef maður nær að gjörnýta afganga og því um líkt) frekar en að kaupa það sem er hendi næst í hvert og hvert skipti, jafnvel þótt reynt sé að velja heilsusamlega. Er einmitt að byrja aftur að vinna í mars og ætla þá að tileinka mér "ávallt viðbúin lífstílinn" í stað "sleppi bara hádegismat og borða bara þegar ég kem heim lífstílsins"
Mína (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 19:02
Já þetta er klárlega málið! Var einmitt að gera þetta í gær:)
.... hvað ertu að fá þér t.d. mikið af hýðishrísgrjónum í hádegismat?
Hrund (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 19:27
Frábært blogg Nagli.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 28.1.2008 kl. 21:39
Tek undir með Fjólu, frábært blogg og skemmtilegir pistlar :) Haltu þessu áfram!
Mig langaði að spurja þig útí eggjakökupönnsur, áttu uppskrift? Ég prófaði að gúgla eggjahvítupönnsur og það kom bara þitt blogg (hefði kannski átt að prufa eggjakökupönnukökur) wotever ;) Áttu uppskrift og hvað setur þú á þær?
Kær kveðja,
Sunna Björg (þekkir mig ekkert... :))
Sunna Björg (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 22:26
Mína! Ekki spurning að fara með "hjemmelavet" með þér þegar þú snýrð aftur út í samfélag hins vinnandi manns. Það er ekki í boði að sleppa því að borða, bara til að ýta brennslunni niður í núll og gúffa í sig í blóðsykursfalli þegar heim er komið.
Eva! Þegar ég var að skera fyrir mót borðaði ég 70-80 g (soðin) en núna þegar ég er að byggja mig upp og stækka er ég örugglega að háma í mig 120 g.
Sunna Björg! Þakka þér fyrir hrósið og takk fyrir að kíkja í heimsókn. Það á að vera uppskrift hérna einhvers staðar á síðunni að pönnsunum, en ég skal henda henni upp aftur við fyrsta tækifæri.
Ragnhildur Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 10:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.