Hollusta morgunkorns

 

Flestir byrja daginn á því að hella morgunkorni ásamt mjólk í skál. 

En hollustugildi morgunkorns er ansi mismunandi milli tegunda og mikilvægt að lesa vel innihaldslýsinguna á pakkanum.

Korntegundin skiptir mestu máli. 

Bestu kostirnir eru þær afurðir sem innihalda heila hafra, haframjöl, hafraklíð, heilhveiti, hveitiklíð, hveitikím, hýðishrísgrjón og bygg.  Gamli góði hafragrauturinn úr heilum höfrum er því fremstur í flokki hvað hollustu varðar.

 

Hins vegar ætti að forðast tegundir sem eru úr hvítum hrísgrjónum, maís og hvítu hveiti. 

Þar er búið að strippa kornið af næringarefnum eins og trefjum, vítamínum og steinefnum og sáralítil hollusta eftir.

 

Einnig þarf að skoða trefjainnihald og sykurinnihald vörunnar og hafa í huga: Meiri trefjar og minni sykur.

Athugið að í kolvetnainnihaldi vörunnar skal hlutfall kolvetna á móti sykri vera 4:1.  Til dæmis þegar kolvetni eru 24 g skal sykur ekki vera meira en 6 g.  Það segir okkur að megnið af kolvetnunum er að koma úr trefjum og korni en ekki sykri.

 

Trefjar:

 

Cheerios er með 7,5 g af trefjum í 100g

All Bran með 14,5 g í 100 g

 

Hins vegar er morgunkorn sem er úr mikið unnu korni yfirleitt með lágt trefjainnihald. 

Til dæmis Corn Flakes, en þar eru trefjar aðeins 2,0 g í 100 g.

 

Sykur:

Mikill munur er á sykurinnihaldi morgunkorns eftir tegundum. 

Þær tegundir sem hafa minnstan sykur eru með 4,0 g í 100 g.

Mestur er sykurinn 40 g í 100 g eða sem samsvarar 20 sykurmolum.

 

Sykurinnihald í nokkrum tegundum:

 

Weetabix (4,4 g)

Cheerios (4,5 g)

Corn Flakes (8,0 g)

Fitness/ Special K (12,8 g)

Havre Fras (13,0 g)

 

Ekki láta blekkjast af litlum berjum sem skoppa glaðlega á mjólkinni utan á pakkanum.  Flest morgunkorn sem innihalda ávexti nota þurrkaða ávexti sem eru mjög sykraðir, og yfirleitt er um mjög takmarkað magn að ræða.  Þó þeir sé titlaðir framarlega í innihaldslýsingunni er það vegna þess að þurrkaðir ávextir eru þyngri en ferskir ávextir.

Mun hollara er að kaupa hollt morgunkorn og bæta ferskum ávöxtum við.

 

Eins ber að varast morgunkorn sem titlað er án sykurs en megnið af innihaldinu eru þurrkaðir ávextir eins og rúsínur og döðlur sem eiga að kýla upp sætubragðið og þannig sleppa við að nefna viðbættan sykur á pakkanum.  Slíkt morgunkorn er oft mjög hitaeiningaríkt sökum sykursins í þurrkuðu ávöxtunum.

 

Granóla morgunkorn er oft mjög fituríkt eða um 4- 9 g í hverjum 100 g og því auðvelt að fá of stóran skammt hitaeininga úr einni skál.

 

Góðir kostir:

Heilir hafrar/ Hafragrautur

Haframjöl/ Hafragrautur

All Bran

Weetabix

Spelt flakes

Bran flakes

Haframúslí

Cheerios

 

Síðri kostir:

Special K

Fitness

Just right

Granóla

Fruit & Fibre

Alpen

 

 

Mjög slæmir kostir:

Cocoa puffs

Honey nut Cheerios

Lucky Charms

Rice crispies

Coco pops

Frosties

Sykrað múslí t.d Axa

 

 

Það er mikilvægt að fylgjast með magninu sem við borðum af morgunkorni í hvert sinn.  Erum við að borða upp úr stærstu skálinni á heimilinu og fá þannig tvöfaldan jafnvel þrefaldan ráðlagðan skammt?

Gott ráð er að skipta niður í minni skál, þá finnst okkur við vera að borað meira ef skálin er full.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jii ég var einmitt að hugsa um það áðan að stinga upp á morgunkornapistli hérna - takk fyrir það :)

Auður (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

En fyndið... great minds think alike

Ragnhildur Þórðardóttir, 3.6.2008 kl. 10:42

3 identicon

Og fyrir þá sem finnst hafragrautur allt annað en góður þá er alger snilld að fá sér haframjöl með undanrennu og hreinu súkkulaði próteini út á, algert nammi!!

Frábær pistill. Það er lygilegt hvað það heldur manni við efnið að kíkja inn á síðuna þína á hverjum degi, takk fyrir "hjálpina" ;o)

Helga (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:04

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Súkkulaði prótín hrært út í vatn og hrært út í hafragrautinn er algjör snilld og ég er orðin algjörlega háð.

Alls konar bragðdropar og kanill er líka rosa gott.

Ragnhildur Þórðardóttir, 3.6.2008 kl. 11:22

5 identicon

Það er æði að blanda saman 1 dl haframjöli, smá súkkulaði próteini, eggjahvítu, 1 tsk af kotasælu, smá kanil og jafnvel nokkrum rúsínum í skál og hræra vel saman. Búa til eina stóra klessu, setja inn í ofninn og búa þannig til hafraköku og borða í morgunmat. Rosa sniðugt ef maður hefur lítinn tíma á morgnanna að búa þetta til kvöldinu áður og grípa með sér á leið í vinnuna!!

Hollur og góður morgunmatur :-)

Kristín Birna (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 12:06

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Mmmm, jammí hvað þetta hljómar eitthvað girnilega. Hvað hefurðu hana lengi í ofninum?

Ragnhildur Þórðardóttir, 3.6.2008 kl. 13:19

7 identicon

Bökunartíminn fer eftir því hversu þykka maður vill hafa hana. Ég hef mína svona ca. 2 cm þykka og þá er hún að taka um 40 mín í ofni á 150°C. Og ég er að nota um 15 gr. af próteininu á móti 1 dl af haframjöli.

Ef blandan er þurr og erfitt að hræra þessu saman þá set ég bara nokkra dropa af vatni til að halda kökunni betur saman!

Þetta er bara gott ;-)

Kristín Birna (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 549236

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband