11.8.2008 | 15:39
Plankinn
Naglinn fékk fyrirspurn í athugasemdakerfinu um hvaða æfing "Plankinn" sé.
Þessi æfing tekur vel á djúpu kviðvöðvunum (transverse abdominus).
Með því að styrkja þessa vöðva stuðlum við að sterkari miðju. Þessir vöðvar toga magavegginn inn á við og ásýnd kviðsins verður fallegri og sléttari kviður þegar þessir vöðvar eru sterkir.
Plankinn er mjög góð æfing til að styrkja djúpu kviðvöðvana.
Hægt er að gera hana sitjandi, standandi eða liggjandi.
Algengast er að framkvæma hana liggjandi, annað hvort á hnjám (auðveldara) eða á tám (erfiðara).
Lagst á magann á gólfið. Farið upp á olnbogana, tær eða hné í gólf þannig að líkaminn sé í þráðbeinni línu frá hvirfli til ilja. Kviðurinn sogaður inn, nafli í hrygg. Ágætt að ímynda sér að undir maganum sé logandi kerti. Halda stöðunni í 15-60 sekúndur, lengur ef hægt er.
Muna að anda!! Róleg öndun.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæ
hvernig er þessi æfing gerð sitjandi
berglind (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 16:53
Berglind! Situr á bekk eða stól, dregur nafla inn í hrygg og heldur stöðunni. Snilld að gera í vinnunni ;-)
Ragnhildur Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 19:23
Hæ Ragga
Ég kíki oft við á síðunni þinni og dáist að dugnaði þínum, virkar þvílíkt hvetjandi á mig. Eitt sem mig langaði að spyrja þig um í kjölfarið á magaæfinga ráðleggingunum (sem er mitt problem zone) er hvort þú vitir eitthvað um slendertone magaþjálfann. Ég æfi reglulega (cardio + lyfti lóðum) en var að hugsa um að bæta hinu inni í prógramið, svona yfir sjónvarpinu á kvöldin. Any thoughts?
Áhugasöm (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 20:21
hæ,
Ég finn ekki fyrir sætindaþörf á daginn en á kvöldin.... þá langar mig alveg svakalega mikið í eitthvað sætt ;-) Með hverju mælir þú til að svala þörfinni ?
kveðja, Sjúk í sætt
Sætindi !! (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 22:47
takk
ég prufa það
berglind (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:12
hæ Ragga
þú
berglind (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:19
ups sendi þetta óvart
þú virðist vera í mjög góðu form og ættir kanski að prufa að fara í boot camp ég er í því og ég bara elska það
berglind (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:24
Áhugasöm! Ég hef litla trú á slíkum tækjum, maginn kemur með réttu mataræði, brennsluæfingum og styrktaræfingum. Þarna skiptir mataræðið höfuðatriði, enda er kviðurinn fitusöfnunarsvæði hjá flestum konum og þegar fitan fer þá sjást kviðvöðvarnir sem við höfum byggt upp. Utanaðkomandi rafstraumar hafa litla virkni að mínu mati.
Sætindi! Þá ertu ekki að borða nóg yfir daginn ef líkaminn er að kalla á sykur á kvöldin. Ef þú borðar jafnt og þétt allan daginn áttu ekki að upplifa sykurfall á kvöldin. Eins getur þetta verið vani, og hann þarf að brjóta upp. Píndu þig nokkur kvöld í röð að sleppa sælgæti eða öðru narti á kvöldin, borðaðu bara þinn kvöldmat og fáðu þér svo prótínsjeik fyrir svefninn en ekkert annað.
Berglind! Já ég hef oft hugsað um að prófa Boot Camp, það er á dagskránni skal ég segja þér. Enda er ég eiginlega skyldug því Biggi og Robbi eru gamlir félagar mínir og miklar elskur.
Ragnhildur Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 11:43
Alveg er ég viss um að þú fílir BootCamp. Ég var í þessu í ár og hafði gaman að. Reyndar lítið um lyftingar þar en þetta er biluð brennsla, og mjög skemmtileg brennsla :)
Audrey, 12.8.2008 kl. 12:52
Sæl Ragga. Var að lesa aðeins um plankann hérna hjá þér. Það að gera æfinguna sem allir helstu þjálfarar heims kalla planka (eða plank) er ekki hægt að gera sitjandi, þótt að æfingin sem þú ert að tala um (það að draga inn naflann) sé mjög góð æfing fyrir transversinn, og alveg crusial við mjóbaksvandamálum sé frábær þá telst hún bara ekki til plankaæfinga hjá flestum þjálfurum, þó er það svosem í lagi að þú kallir hana planka því það eru svosem engar reglur um nafngift æfinga :) Annað sem ég vil nefna þá krefst þessi æfing (transvers æfingin), ef þú vilt virkja transversus abdominis góðrar hreyfistjórnar og góðrar leiðsagnar
Ég er ekki alveg sammála því að transversinn sé einhver útlitsvöðvi sem bæti ásýnd kviðsins, þó getur hann gert það að einhverju leiti, en maður verður að muna það að hann er innstur af þessum blessuðu 3 lögum af kviðvöðvum sem við höfum.
Eitt sem ég vill bæta við með plankann er það hversu functional æfing hann er, og í raun betri en aðrar kviðæfingar vegna þess að í flest öllum tilvikum þá virka kviðvöðvarnir okkar sem "stopparar" eða stöðugleikavöðvar og koma í veg fyrir hreyfingar, og vernda þannig hrygginn alveg ómetanlega. Þannig er best að þjálfa þessa vöðva með isometrisku álagi. Annað sem má benda á er að láta fólk ekki gleyma hliðar-plankanum (side-plank), sem er ekki síður mikilvægur en straight plank æfingin.
Flott framtak þetta blogg, gaman að lesa þetta og gaman að kommenta hjá þér!
Einar Óli Þorvarðarson, Þjálfari og 3 árs sjúkraþjálfunar-nemi
Einar Óli Þorvarðarson (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 12:31
Takk fyrir þetta Einar Óli.
Ragnhildur Þórðardóttir, 13.8.2008 kl. 15:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.