12.8.2008 | 13:51
Fat but fit
Það má ekki líta framhjá því að grannur maður er ekki alltaf í góðu formi. Það er mjög algengt að grannir séu svokallaðir “skinny-fat” þar sem fitan sest að mestu leyti á innyfli og það getur verið mjög hættulegt heilsunni og aukið líkurnar á alls kyns kvillum. Þeir sem eru grannir en hreyfa sig ekki eru til dæmis í áhættuhópi á að fá hjartasjúkdóma, alveg eins og þeir sem eru of feitir og hreyfa sig ekki. Maður sem er grannur og hreyfir sig ekki stendur verr að vígi þegar kemur að áhættu á lífsstílssjúkdómum en of þungur maður sem hreyfir sig reglulega. Þeir sem eru þykkir þurfa ekki endilega að vera óhraustir eða í lélegu formi. Það skiptir auðvitað máli hvort umfram þyngd sé í formi fitu eða vöðva. Það kemur ekki nógu skýrt fram í þessari rannsókn aðgreining of þungra eða of feitra. Þeir sem eru með mikinn vöðvamassa geta flokkast sem of þungir skv. BMI stuðlinum. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda á að betra sé að meta fólk eftir mittismáli en BMI og má því gera ráð fyrir að þátttakendur hafi verið flokkaðir skv. BMI. Mittismál og fitumæling segir okkur hvernig þyngdin er samsett en ekki BMI. Það sem skiptir mestu máli er að hreyfa sig reglulega, því hreyfingin er sá þáttur sem minnkar líkur á hjartasjúkdómum og tengdum kvillum. Það er hins vegar ennþá hætta á sykursýki þó að maður hreyfi sig en er enn of þungur. Mataræðið skiptir þess vegna alltaf máli, þvi það er lykillinn að því að halda sér í kjörþyngd og halda hlutfalli fitu í líkamanum í lágmarki.
Helmingur feitra hefur hraust hjarta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fróðleikur | Breytt 3.11.2008 kl. 10:33 | Facebook
Spurt er
Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl,
Þú ert svo dugleg að svara okkur öllum hér á síðunni þinni... ótrúlegt, takk, takk
Freistast því til að skella annarri spurningu á þig, ég er ca 20% fita, 54 kg, 167 cm og 35 ára (jæja þá er ég búin að opinbera mig!!) Er að reyna að koma fituprósentunni niður og bæta við vöðvum. Væri í lagi fyrir mig að drekka Myoplex Diet drykk á kvöldin? Ég verð oft ansi svöng á kvöldin og á þá til að detta í sætindin. Ég nota Kreatín fyrir og eftir æfingu og prótein líka eftir æfingar.
kveðja,
Dyggur lesandi
Dyggur lesandi (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 22:55
Ertu þá að tala um á kvöldin eftir kvöldmat? Ég mæli ekki með því seint á kvöldin, fáðu þér frekar hreint prótín ef þú verður svöng á kvöldin og þá helst casein prótín sem er hæglosandi og veitir líkamanum amínósýrur yfir nóttina. Passaðu líka að borða reglulega yfir daginn, þá áttu ekki að finna fyrir hungri á kvöldin. Það er yfirleitt merki um að hitaeiningaþörf dagsins sé ekki uppfyllt.
Gangi þér vel.
Ragnhildur Þórðardóttir, 13.8.2008 kl. 09:13
Flott grein hjá þér :)... Það er allt of mikil pressa á að fólk sé bara grannt (óháð því hvernig formi það er í) í samfélaginu eins og það er í dag.
Bjarki (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 09:06
Takk fyrir það Bjarki. Það er óþolandi hvernig fjölmiðlar og tískan hefur hyglt undir hinn granna vöxt, og sett samasem merki milli þess að vera grannur og að vera hraustur. Þarna er svo langur vegur frá. Þessir grönnu eru nefnilega mjög oft í lélegu formi því þá vantar hinn félagslega hvata til að hreyfa sig, eins og hinir þykkari sem nota yfirleitt hreyfinguna til að verða grennri. Þannig styrkja þeir hjarta og æðakerfið sem og stoðkerfið um leið án þess að stefna sérstaklega að því.
Ragnhildur Þórðardóttir, 14.8.2008 kl. 11:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.