2.10.2008 | 15:24
Sítrónu-bláberja hollustu múffur
Gerir 12 múffur (4 múffur er sirka einn skammtur)
Hráefni:
18 eggjahvítur
120 g haframjöl
1 tsk sítrónudropar
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
105 g frosin bláber
Aðferð:
Hita ofn í 200° C.
Blanda þurrefnum vel saman í skál, bæta svo eggjahvítum við og hræra vel.
Spreyjaðu 2 x 6-múffu form með PAM. Helltu deiginu eins jafnt og hægt er í múffuformin. Settu frosin bláber (þurfa ekki að þiðna fyrst) ofan á hverja múffu og pressaðu varlega ofan í (ekki of mikið samt, deigið er frekar þunnt).
Bakað í 20 mín.
Þessar má frysta og taka út á morgnana og skella í örrann og voilá! snilldarmorgunmatur með flóknum kolvetnum, prótíni og bláberjum sneisafullum af andoxunarefnum.
Engin afsökun lengur fyrir tímaleysi á morgnana
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Matur og drykkur, Uppskriftir | Breytt 27.10.2008 kl. 14:26 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Obbosí, hrikalega girnilegt týndi einmitt svo mikið af bláberjum sem ég er í vandræðum með, þetta ætla ég sko að prófa, það kæmi sér samt vel að eiga hænsnabú.
Vala Árnadóttir (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 19:41
Verð að prófa þessa uppskrift. Segi sama og Júlíus hér fyrir ofan, kíki hérna inn næstum daglega.
Gangi þér vel að halda áfram undirbúningi fyrir keppni
Soffía (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 08:28
Vá, ekkert smá girnileg uppskrift, maður verður að prófa þetta einhvern tíma
Soffía Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 08:56
Vala! Úff ég hugsa oft til þess hve gott það væri að vera með nokkrar hænur í garðinum, og þá hænur sem verpa bara eggjahvítum .
Halldóra! Talaðu ekki um veðrið ógrátandi, hér er alhvít jörð og ég búin að vera með jólalög á heilanum í allan morgun. Það er 3. október!!!!
Júlíus, Soffía og Soffía! Maður bara roðnar við svona hrós. Takk fyrir að kíkja í heimsókn. Endilega tékkið á múffunum, ekki veitir okkur Júlíusi af tilbreytingu í preppið.... og þessar eru algjörlega "prep-friendly". Svo má prófa önnur ber, eða aðra bragðdropa.
Ragnhildur Þórðardóttir, 3.10.2008 kl. 09:09
Þegar að þú tekur HIIT brennslu eins og þú lýstir svo lista vel hérna um daginn, er þá æfingin bara hálftími eða er eitthað fleira sem að maður tekur með henni þessari?
P.S. fékk alveg vatn í munninn yfir þessu... big muffins fan
Palli (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:25
Ég tek yfirleitt bara HIIT, hún tekur yfirleitt 25-30 mín hjá mér með upphitun og cool down. Ef mér finnst ég þurfa þá tek ég kannski 10 mín rólega á þrekstiga eða skíðavél á eftir..... en það er ekki oft samt.
Eftir svona æfingu áttu að vera að biðja um miskunn eftir 20 mín, ef ekki þá þarftu að taka betur á því í sprettunum næst.
Ragnhildur Þórðardóttir, 3.10.2008 kl. 10:54
mmm... prófa þetta við tækifæri :)
Hrund (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 11:47
Ég var að spögglera...en ef maður tekur svona HIIT æfingu og sprengir sig á kannski fyrstu 10 mínútunum og bara getur hreinlega ekki meira...á maður þá að láta það duga í nokkur skipti og vinna sig upp í 20 mín. eða taka minna á því næst?
Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 12:27
10 mínútur er svolítið stuttur tími. Prófaðu að taka lengri tíma á milli sprettanna þar sem þú ert á rólegra tempói til að ná púlsinum niður áður en næsti sprettur hefst. Prófaðu líka að taka styttri spretti,10-20 sek, og vinna þig smám saman upp í 30-60 sek.
Ragnhildur Þórðardóttir, 3.10.2008 kl. 14:19
Hæhæ rosalega fróðleg síða sem ég skoða oft:)
Langaði til að spyrja þig að einu í sambandi við að ná af sér síðustu leiðindarkílóunum, hvað þarf maður að gera??? Hvernig á maður að borða/hafa mataræðið og hvernig eiga æfingar að vera?
Mig langar hrikalega að ná af mér 5kg.+ , búin að ná af mér 10kg. og það á einu ári en hef svo bara staðnað eftir þessi kg. og bara næ ekki fleirum af mér, enda þarf kannski mikið meira til heldur en að hreyfa sig og borða það sem maður telur hollt?
Ertu með "uppskrift" af seinustu kg. missi?;)
Kv. Halldóra :O)
Halldóra Hanna (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 23:57
Hæ, skemmtileg síða.
á maður að stífþeyta eggjavíturnar?
Halldóra (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 21:49
Halldóra Hanna! Það er voða erfitt að ráðleggja svona án þess að vita allar forsendur. Oft er þetta spurning um að breyta til í mataræðinu og þjálfuninni. Líkaminn er rosalega fljótur að aðlagast, og við þurfum stöðugt að koma honum á óvart til að ná árangri. Ef þú hefur áhuga á að koma til mín í fjarþjálfun geturðu sent mér meil á ragganagli@yahoo.com
Halldóra! Nei, bara hræra þeim saman við þurrefnin.
Ragnhildur Þórðardóttir, 6.10.2008 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.