Óþarfa áhyggjur

Þar sem ég djöflaðist í lóðunum í ræktinni í gær kemur til mín maður, kynnir sig og segist vera læknir. 

Hann sagði að hann sæi sjaldan konu sem tæki jafn vel á því og ég og að hann vissi til þess að ég æfði mjög mikið.  Hann sæi líka að ég væri "komin af stað" og væri því með áhyggjur.  Ég áttaði mig ekki alveg á hvað hann meinti með "að ég væri komin af stað".  Þá dregur hann mig afsíðis og segir:  "Ég hafði bara áhyggjur að þú værir að lyfta of þungt verandi ófrísk".  Ég tjáði honum að áhyggjur hans væru óþarfar þar sem ég sé EKKI ófrísk.  "Nú" segir maðurinn, "mér fannst kviðurinn á þér sýna þess merki".  Svo ég hló bara við og sagði honum að þetta væru nú bara leifarnar af velmegun helgarinnar.  En mér var sko ekki hlátur í hug Angry, enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem ég fæ svona athugasemd.  Ég meina hvað er að fólki.... þó mallinn sé ekki rennisléttur þá er bara ályktað strax að konan sé með barni. 

Smá ráðlegging (til karlmanna sérstaklega).....ekki spyrja konu hvort hún sé ófrísk fyrr en á 9. mánuði og helst bara ekkert fyrr en á fæðingadeildinni til að vera alveg viss. 

Nú verður sko googlað hvar er hægt að fá ódýra svuntuaðgerð !!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HEHEHE....jeminn góður, þetta er nú farið að vera svolítið fáránlegt...hefði samt viljað sjá svipinn á kauða. En það er nú svo að þegar konur eru orðnar þetta grannar þá meiga þær varla innbyrgða eina ertu án þess að hún sjáist á mallanum tíhí En bara svona svo þú vitir það að þá finnst mér þú allavega alls ekkert með óléttumalla og við eru margar sem öfunda þig á þessum malla þannig að þú skalt nú bara snarlega hætta öllum hugsunum um einhverja svuntuaðgerð góða mín

Ingunn (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 09:41

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir hughreystingarnar og hrósið elskan mín .  Mallinn er nú samt ekkert öfundsverður eftir sukkið um síðustu helgi , en það er verið að vinna í því.  Þeim verður víst að svíða sem undir míga!! En eins og þú segir að þá er þetta eiginlega orðið fáránlegt hvað ég fæ oft þessa ÖMURLEGU spurningu.  Það liggur við að maður skelli í eitt bara til þess að fólk hafi ástæðu til að spyrja

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.6.2007 kl. 10:53

3 identicon

Hahahaha þetta er orðið alveg fáránlegt... Ég get ekki með nokkru móti séð hvernig fólk fær það út að þú sért ólétt...

En ég held reyndar að þú þurfi að vera með svuntu svona í alvörunni til að fara í svuntuaðgerð þannig að só sorry. Þú átt í það minnst mjög langt í land til að vera gjaldgeng í svoleiðis.

Þú þarft alls alls ekki að vera með komplexa yfir mallakút, hann er svo fínn og örugglega margar konur sem myndu vilja fara í "naglamagaaðgerð"

Knús og kram

Anna panna og svuntan

Anna María (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 11:27

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir uppörvunina elsku dúllurnar mínar *knús*.  Maður á auðvitað bara að blása á svona bull og elska friðinn og strjúka (útblásinn) kviðinn

Ég var í þvílíku dramakasti yfir þessu öllu saman í gær og sagði að maðurinn hefði ekki bara eyðilagt fyrir mér daginn heldur allt árið 2007 og ég myndi aldrei borða meir....NEVER bara!!  En ég entist ekkert í þeirri aðgerð og er hætt við það og svuntuaðgerðina og hlæ bara að þessu í dag .

Hvaða svuntu ert þú annars að tala um Anna María...sbr. Anna panna og svuntan ??  Ég geri ráð fyrir að þú sért að elda ! 

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.6.2007 kl. 14:30

5 identicon

Jahérna hér!! Ég tek undir með þér.. maður á bara ALDREI að gera ráð fyrir að konur séu óléttar nema það bara geti ekki verið neitt annað. Ég hef reyndar lent í þessu sjálf. Þ.e. að karlmaður hafi gert ráð fyrir því að ég væri ólétt þegar ég var það svo sannarlega ekki. Ég er reyndar í allt öðru "formi" en þú og var þá u.þ.b. 15 kg þyngri en ég er í dag  svo þetta er ekki beint sambærilegt. Ég var samt rosalega hissa á honum að láta þetta út úr sér. Til að gera þetta verra þá eyðilagði hann afmælisdaginn minn  En svo er hægt að líta á björtu hliðarnar... þetta var líka harkalegt "wake-up-call" í mínu tilfelli og ég fór að gera eitthvað í mínum málum í kjölfarið. En núna er ég komin svolítið út fyrir efnið. Þessi saga þín vakti bara upp minningar

Mikið vildi ég annars að ég kæmist í Esjugönguna á morgun! Verð líklega að finna mér einhverja aðra áskorun þessa helgina. En ég ætla mér suður bráðlega og þá er Esjuganga á stefnuskránni  Óska þér góðrar skemmtunar í þinni á morgun

Óla Maja (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 22:32

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Mikið er ég fegin að einhver önnur en ég hefur lent í þessari ömurlegu lífsreynslu, því ég var farin að halda að maginn á mér væri eitthvað óeðlilegur þar sem ég hef verið spurð að þessu ekki bara einu sinni, heldur ÞRISVAR sinnum.

Stundum þarf svona óþægilegt "slap in the face" til að gera eitthvað í sínum málum, eins og þú þekkir greinilega. Það var ekki fyrr en ég komst ekki lengur í jólafötin í júní að ég ákvað hingað og ekki lengra. Ég hafði oft fengið komment um að ég væri of feit, en lifði bara í sjálfsblekkingu, og hlustaði ekki á það. Kannski að maður ætti að taka mark á svona óléttukommentum og laga helv&%# magann.

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.6.2007 kl. 12:46

7 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Djöf dóni

Eysteinn Skarphéðinsson, 2.6.2007 kl. 18:15

8 identicon

Þú ERT að grínast??!!!! Ef þú færð svona komment, þá eigum við hinar okkur ekki viðreisnar von!!!

Ef naglinn vill miskunna sig yfir karókídrolluna og hafa hana með sér í átak, þá þiggur hún það með þökkum :) lofa að vera ekki auminginn í þínu liði!!!

Lovísa (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 12:53

9 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Karókídrollan er velkomin í átak a la Naglinn.  Nefndu bara stað og stund og ég mæti með svipuna  múúhahaha....  Nei nei ég lofa að vera góð  við þig.

Ragnhildur Þórðardóttir, 4.6.2007 kl. 08:49

10 identicon

ég er laus næst á fös og um helgina, svo mið og fim..!

Lovísa (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 549168

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband