Góð fita vs. Vond fita

   

Í Ameríku og víðar á Vesturlöndum hafa "low-fat" megrunarkúrar notið gríðarlegra vinsælda en samt sem áður fer offituvandinn alltaf stækkandi í þessum löndum.  Það er nefnilega ekki samasem merki milli þess að borða ekki fitu og vera ekki feitur.

Há líkamsfita stafar venjulega af slæmu mataræði með of mikið af einföldum kolvetnum og vondri fitu.

Fita er einn af orkugjöfunum ásamt prótíni og kolvetnum (og alkóhóli). 

En öll fita er ekki eins, því það eru til fjórar gerðir af fitusýrum í mat:

mettaðar, einómettaðar, fjölómettaðar og transfitusýrur

 

Mettuð fita og transfitusýrur flokkast undir slæma fitu og neysla þeirra stuðlar að þyngdaraukningu og eykur líkur á ýmsum kvillum, en einómettaðar og fjölómettaðar fitusýrur eru nauðsynlegar fyrir góða heilsu og eðlilega líkamsstarfsemi.  Fita gegnir nefnilega mikilvægu hlutverki í líkamanum því hún umlykur og verndar líffæri gegn hitasveiflum, styrkir frumur líkamans, heldur hári og nöglum heilbrigðum, stuðlar að réttu hlutfalli fitu og vöðva og veitir vörn gegn ýmsum sjúkdómum.  Vilji fólk halda góðri heilsu og/eða líta vel út þá ætti það að skipta mettaðri og transfitu í mataræði sínu út og neyta ómettaðrar fitu í staðinn. 

 

  • Mettuð fita finnst í dýraafurðum, s.s rauðu kjöti, kjúklingaskinni og eggjarauðum.  Hún finnst einnig í feitum mjólkurvörum s.s smjöri, nýmjólk, rjómaís og feitum ostum og í pálmaolíu og kókoshnetuolíu.  Mettuð fita er hörð við stofuhita, sbr. smjör. Mettaðar fitusýrur hækka slæma kólesterólið (LDL) sem getur valdið æðaþrengingu og þar með aukið líkur á hjartaáfalli.
  • Transfitusýrur finnast í kexi, kökum, snakki, örbylgjupoppi og frönskum kartöflum.  Transfitusýrur myndast þegar fljótandi olía er hert að hluta til með vetni en það er gert til að hún þráni síður og matvælin geymist því lengur.  Rannsóknir hafa sýnt fram á að neysla á transfitu veldur röskun í ónæmiskerfinu og tengist langvarandi sjúkdómum eins og sykursýki, heilaáfalli og hjartasjúkdómum.
  • Einómettaðar fitusýrur finnast aðallega í ólífuolíu, kornolíu, hnetum, avocado. Þær lækka magn LDL (slæma) kólesteróls í líkamanum og stuðla þannig að heilbrigðu hjarta- og æðakerfi.  Þessi tegund fitu er fljótandi við stofuhita.
  • Fjölómettaðar fitusýrur eru hinar frægu Omega 3-6-9 fitusýrur sem finnast í feitum fiski (lax, makríll, síld, sardínum), sólblómaolíu, hörfræolíu, valhnetum og kornvörum.  Þessar fitusýrur eru taldar vernda gegn sykursýki því þær vinna gegn insúlínónæmi í líkamanum. Þær hjálpa einnig til við að þynna blóðið og draga því úr líkum á ýmsum hjarta- og æðasjúkdómum.

Þar sem 1 gramm af fitu inniheldur 9 hitaeiningar skal varast að neyta of stórra skammta af ómettuðum fitusýrum.  Ráðlagður dagskammtur af fitu er 20 % af heildar hitaeiningum.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þessa flottu fitu-fræðslu  Þetta skýrir ýmislegt  

Óla Maja (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 23:39

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Maður hefur alltaf verið svo hræddur við fituna , en það er greinilega ekkert að óttast  nema viðbjóðinn i mettuðu og transfitunni .

Ragnhildur Þórðardóttir, 5.6.2007 kl. 11:13

3 identicon

Einmitt.. þessi fituáróður var ansi áberandi á tímabili og maður sér það núna hvað það hafði mikil áhrif á mann því ég var hreinlega farin að forðast ALLA fitu. Þó það sé orðið svolítið langt síðan maður heyrði að eitthvað væri til sem héti góð og slæm fita þá kannski vantaði svolítið upp á frekari skilgreiningu. Mér finnst líka t.d. fólk oft vera fast í svona skilgreiningum eins og "öll fita er slæm" (þó það heyrist kannski ekki oft í dag) og ég hef heyrt fólk tala þannig um t.d. hnetur. Eins og allar hnetur séu undir sama hatti en þó ég sé enginn næringarsérfræðingur þá veit ég að þær eru mjög misjafnar. Þú kannski lumar á hnetufræðslu líka?  

Óla Maja (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 12:37

4 Smámynd: Eydís Hauksdóttir

Þetta er algjör snilldarsíða hjá þér Ragnhildur :) Við Hilmar erum bæði búin að vera að lesa pistlana þína okkur til gagns og gleði enda erum við í smá átaki núna og erum að reyna að losna við nokkur kíló og koma okkur í betra form. Margir góðir punktar sem við erum búin að lesa um hérna hjá þér sem við nýtum okkur núna. Bestu kveðjur frá Árósum, Eydís

Eydís Hauksdóttir, 5.6.2007 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 549169

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband