6.6.2007 | 09:33
Allt er breytingum háð....
Nú er allt að gerast í ræktinni. Alls konar breytingar verið gerðar og þær hafa greinilega verið til góðs.
Byrjaði á kreatíni aftur fyrir u.þ.b viku og það er aldeilis að virka. Tók tvíhöfða og þríhöfða í gær og var öflugri en ég hef verið í langan tíma. Gat þyngt í nánast öllum æfingum. Svo er ég ekki frá því að vöðvarnir hafi bara hafa stækkað, svei mér þá. Ég tók nefnilega eftir því fyrir stuttu að ég hafði rýrnað enda búin að vera í allt of mikilli brennslu undanfarið. Svo ég köttaði út brennslu seinnipartinn og tek núna bara brennslu á morgnana í 45-60 mínútur.
Svo skipti ég um lyftingaprógramm og lyfti nú hvern vöðvahóp tvisvar í viku í staðinn fyrir bara einu sinni áður. Er búin að vera á þungu prógrammi í langan tíma, þar sem ég lyfti fáar endurtekningar með miklar þyngdir. Ég var algjörlega stöðnuð í þyngdunum og bara hálf-orkulaus og áhugalaus á æfingum. En núna er ég að lyfta fleiri endurtekningar (12-15) með aðeins minni þyngdir en áður og keyri á meiri ákefð, tek styttri hvíldir milli setta og fullt af súpersettum.
Mataræðið er samt ennþá það sama: kjúlli, lax, eggjahvítur, hýðishrísgrjón, gróft haframjöl, sojamjólk, myoplex, grænmeti. Ég er reyndar byrjuð að taka CLA fitusýrur aftur og vítamíntöflur. Ávexti og mjólkurvörur borða ég ekki nema kotasælu og einstaka sinnum epli. Mér fannst ég alltaf svo uppþembd eftir að hafa borðað skyr, og hætti algjörlega að borða það þegar ég var í náminu úti í Guildford, enda ekki fáanlegt þar, og fann strax mun á mér. Ég sá líka mun á skrokknum eftir að hafa köttað út mjólkursykurinn.
Það er alveg nauðsynlegt að breyta til þegar maður finnur fyrir stöðnun, eða áhugaleysi. Líkaminn er svo fljótur að aðlagast að eftir ákveðinn tíma verða engar framfarir á sama æfingaprógramminu eða mataræðinu.
Eitthvað sem virkaði vel í ræktinni eða mataræði fyrir ári síðan virkar ekki endilega í dag.
Það er líka öruggt að ef maður gerir það sama dag eftir dag, þá kemur upp í mannskepnunni leiði og jafnvel uppgjöf því mannshugurinn þarf örvun og hún fæst ekki með að endurtaka sífellt það sama.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Lífstíll, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ og takk fyrir kommentið! Já, það er ótrúlegt hvað maður getur orðið hundleiður á einhverju sem var svo skemmtilegt einu sinni. Ef ég er ekki með mikla fjölbreytni þá á ég til að leggja árar í bát í einhvern tíma. Svo það er heilmikið til í þessu! Þetta er svo mikið í hausnum á manni að það er ótrúlegt.
Gangi þér vel skvís!
Anna Brynja (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 18:04
En þú dugleg, ánægð með þig stelpa Stefnirðu á að keppa eitthvað á næstunni?
ingunn (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 19:55
Já fullt að gerast maður. Næst á dagskrá eru 10 km í Rvk Maraþoni í ágúst og, svo er það Þrekmeistarinn aftur í október og planið er auðvitað að bæta tímann í hvoru tveggja. Svo er dálítið spennandi að gerast í nóvember sem ég stefni á en meira um það síðar....
Ragnhildur Þórðardóttir, 7.6.2007 kl. 08:53
En spennandi. Dáist að fólki sem leggur í svona hlaup. Ég efast um að ég gæti hlaupið 10 km þó mér væri borgað fyrir það :)
ingunn (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 15:16
Rosalega ertu dugleg! Veistu... þegar ég les þetta þá fyllist ég löngun til að gera eitthvað rosalega rótækt - fara út og hlaupa t.d. Verð samt að viðurkenna að ég efast um að ég gæti hlaupið 10 km Hlakka til að heyra hvað þú ætlar að gera í nóvember líst mjög vel á hitt
Óla Maja (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 20:56
Þú ert ekkert smá öflug... þarf að taka mér þig til fyrirmyndar og fara að hreyfa mig meira. Það eru nú þegar farin tvö kíló hjá mér síðustu tvær vikur, bara við að sleppa gosi, sælgæti og kökum og við Hilmar kíktum á eina líkamsræktarstöð í gær. Erum að reyna að finna einhverjar stöð nálægt nýja strandhúsinu okkar þar sem það styttist nú óðfluga í 1. júlí :) Ég er að spá í að byrja bara rólega þar sem það er svo langt síðan ég hef hreyft mig eða hugsað um mataræði. Bestu kveðjur frá DK, Eydís
Eydís Hauksdóttir, 8.6.2007 kl. 06:22
Segðu mér.. af hverju borðaru svona lítið af ávöxtum? Ein alltaf forvitin
Óla Maja (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 12:31
Ég gæti trúað að Naglinn sneiði fram hjá ávöxtum út af ávaxtasykrinum...sumir eru öfgafullari en aðrir hehe En tekurður þá ekki allavega C-vítamíntöflur?
Ingunn (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 12:38
Já eða öfgafyllri even hehe
Ingunn (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 12:40
Jú jú rétt hjá Ingunni að Naglinn forðast allan sykur, hvort sem hann heitir ávaxtasykur eða mjólkursykur. En ég passa auðvitað að fá öll nauðsynleg vítamín úr grænmeti og það er meira C-vítamín í papriku en í appelsínu .
Það er svo lítið mál að hlaupa elskurnar mínar og þið farið létt með það. Eina sem þarf eru góðir hlaupaskór og góð tónlist, og svo bara nýta sumarið og byrja að æfa sig. Byrja bara á að labba og hlaupa til skiptis, og svo þegar þolið er orðið betra að auka vegalengdina sem hlaupið er og minnka labbið . Reyndar þarf Ingunn kannski að bíða eftir að bumbubúinn láti sjá sig fyrst áður en hún byrjar að skoppa um grænar grundir.
Ragnhildur Þórðardóttir, 13.6.2007 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.