13.6.2007 | 14:34
Skildu egóið eftir heima þegar þú ferð í ræktina
Við skötuhjúin skelltum okkur í heimsókn til pabba gamla í Brussel um liðna helgi og áttum ljúfar stundir eins og alltaf í þessari yndislegu borg. Það eru sko freistingar á hverju horni í þessari borg með vöfflurnar, súkkulaðið, Haagen-Dasz ísinn, og að sjálfsögðu lét Naglinn undan en bara á sunnudaginn auðvitað. Haagen Dasz ís með belgískri dökkri súkkulaðisósu og hnetukurli færir mann nær Guði og því ekki hægt að sleppa slíkri sælu.
Hina dagana var mataræðið tandurhreint og auðvitað farið í ræktina til að hafa efni á sukkinu.
Við pabbi tókum saman æfingu á laugardagsmorgun. Kallinn var bara seigur miðað við 59 ára mann, en ég þurfti samt að skipta mér svolítið af honum meðan hann var að lyfta því hann var ekki að beita sér rétt.
En lyftingatækni er einmitt umræðuefni dagsins.
Rétt líkamsstaða og lyftingatækni er lykilatriði fyrir vöðvauppbyggingu og styrktaraukningu en einnig til að koma í veg fyrir meiðsli. Sé líkamsstaða röng í langan tíma er þjösnast á vöðvum, liðum og liðamótum sem með tímanum getur leitt til álagsmeiðsla. Slíkt krefst yfirleitt læknismeðferðar og oftar en ekki hvíldar frá æfingum. Með því að beita líkamanum rétt á æfingu er hægt að koma í veg fyrir slík meiðsli og þá sálarangist sem fylgir því að geta ekki lengur tekið jafnvel á því eins og áður.
Rétt líkamsstaða fer eftir hvaða æfingu er verið að framkvæma.
Grunnstaða er samt yfirleitt axlabreidd milli fóta og tærnar vísa fram.
Bakið er beint, brjóstkassinn fram og upp eins og við séum montin og horft beint fram fyrir sig.
Kviður er spenntur og ágætt að ímynda sér að naflinn sé dreginn inn að hrygg.
Axlir eru slakar.
Hér koma nokkur grunnatriði í réttri lyftingatækni:
- Hver lyfta samanstendur af samdrætti vöðvans (contraction) og lengingu ( eccentric) hans. Einnig er talað um að samdráttur sé pósitífi hluti lyftunnar en lenging sá negatífi. Ef við tökum dæmi af klassískri æfingu sem er tvíhöfðakreppa (e. bicep curl), þá er pósitífi hlutinn þegar stönginni er lyft upp en þá styttum við vöðvann, þ. e hann dregst saman. Negatífi hlutinn er þegar stöngin er á leið aftur niður en þá lengjum við vöðvann.
- Upphitun er mikilvæg til að koma blóðflæðinu út í útlimina. Til dæmis að hlaupa / ganga í 10-15 mínútur, eða lyfta létt og oft.
- Ekki halda niðri í sér andanum þegar lyft er. Það takmarkar blóðflæði til og frá heila og getur valdið yfirliði. Anda inn í negatífa hlutanum (lengingu) og blása frá í pósitífa hlutanum (samdrætti).
- Ekki lyfta of þungt. Tölustafirnir á lóðunum ákvarða ekki hvort vöðvarnir stækki heldur framkvæmd lyftunnar. Ef nota þarf vogarafl líkamans til að koma þyngdinni upp þá eru vöðvarnir ekki lengur að sjá um vinnuna og vöðvastækkun á sér ekki stað. Sama gildir ef ekki er hægt að nota allan hreyfiferil (ROM) vöðvans sökum of mikillar þyngdar. Ef aðeins er farið hálfa leið niður eða upp þá er aðeins verið að virkja hluta vöðvans og því ekki hægt að búast við nema helmings árangri en ef allur vöðvinn er notaður. Pabbi gamli var einmitt að lyfta alltof þungu í tvíhöfðakreppu og notaði ekki fullt ROM. Eftir að ég leiðrétti hann þurfti að létta á stönginni svo hann gæti framkvæmt lyftuna rétt, en hann fann miklu meira fyrir tvíhöfðanum í lyftunni og var svo að drepast úr harðsperðum daginn eftir. Því meira af vöðvanum sem er notaður, því sterkari verður hann og því meiri vöðvavöxtur og stærri vöðvar og því stærri vöðvar því meiri grunnbrennsla.
- Ekki lyfta of hratt. Það er algeng sjón í ræktinni að fólk drífi sig á ógnarhraða gegnum settið og hugsi ekki um báða hluta lyftunnar, heldur keyri þyngdina upp og láti hana svo detta niður. Hver lyfta á að taka u.þ.b 4-5 sekúndur, 2 -3 sek á hvorn hluta og stjórna þyngdinni, líka í negatífa hlutanum !!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Íþróttir, Lífstíll, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði, Dægurmál | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
snilldar pistill:)
hrannar (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 15:37
Takk fyrir það kærlega. Vonandi gagnast þetta einhverjum og kemur í veg fyrir óþarfa meiðsli ;-)
Ragnhildur Þórðardóttir, 13.6.2007 kl. 20:38
Já þetta er góður pistill og mjög þarfur. Ég var svo heppin þegar ég byrjaði fyrst í ræktinni fyrir... humm .. dálítið mörgum árum að hafa fyrirtaks leiðsögn í byrjun En á þeim tíma sem ég hef dottið inn og út úr ræktinni þá hef ég oft séð fólk beita sér vitlaust í æfingunum. Mjög algengt t.d. að sjá fólk gera æfingarnar af miklum "krafti".. þ.e. miklum hraða eins og það sé betra að pumpa á fullu með lóðunum. Ég hef líka lagt mig eftir því að fá reynda og lærða þjálfara eða íþróttakennara til að fylgjast með mér við æfingarnar annað slagið, því ég er alltaf svolítið smeyk við að vera farin að ruglast í æfingunum og að ég taki þá vitlaust á. Ég held að þetta sé eitt af því sem maður þarf stöðugt að vera vakandi yfir.
Takk fyrir pistilinn
Óla Maja (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 22:33
Það er einmitt mjög sniðugt hjá þér Óla Maja, að fá einhvern reyndan í bransanum til að fylgjast með þér gera æfinguna, því ef maður er að gera vitlaust og veit það ekki þá lagast það ekkert af sjálfu sér. Það verður einhver að benda manni á það. Það er líka svo mikilvægt að einbeita sér að réttri tækni í lyftingunum, en ekki vera að hugsa um þvottinn sem bíður heima eða hvað eigi að hafa í matinn í kvöld .
Ragnhildur Þórðardóttir, 14.6.2007 kl. 08:47
Hehe Nei ég er sko blessunarlega laus við að hafa áhyggjur af heimilisstörfunum á meðan ég er í ræktinni Skil líka gemsann eftir heima nema í einstaka (neyðar)tilfellum því ég vil bara einbeita mér að æfingunum og engu öðru. Ég var á tímabili að svekkja mig yfir því að hafa ekki æfingarfélaga en er núna farin að sjá að það er líka kostur því þá er engin hætta á að maður detti í spjallið Alltaf að berjast í Pollýönnuhugsunarhættinum
Óla Maja (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 23:36
Ég skil líka alltaf símann eftir í skápnum því æfingatíminn er MINN tími og þá er ég ekki ínáanleg... só sorrý bara......
Æfingafélaginn minn er einmitt búin að vera meidd í öxl undanfarna mánuði svo ég hef æft ein þann tíma og það er bara fínt því æfingarnar taka ekki eins langan tíma því maður er bara að æfa en ekki að slúðra .
Ragnhildur Þórðardóttir, 15.6.2007 kl. 13:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.