15.6.2007 | 14:10
Hollt og gott í matinn
Prótín:
Skinnlausar kjúklingabringur
Eggjahvítur
Sjávarfang: s.s lax, silungur, sardínur og makríll, þorskur, ýsa, rækjur, lúða.
Túnfiskur í dós ( í vatni er betra)
Skyr (án viðbætts sykurs)
Magurt nautakjöt eða svínakjöt
Magurt hakk (8-12 % fita)
Kolvetni
Flókin kolvetni (hæglosandi):
Haframjöl (gróft er betra)
Brún hrísgrjón
Sætar kartöflur
Kartöflur
Heilhveiti- eða speltpasta
Einföld kolvetni (hraðlosandi):
Grænmeti:
Kál
Brokkolí
Aspas
Spínat
Baunaspírur
Blómkál
Eggaldin
Grænar baunir
Laukur
Hvítlaukur
Paprika
Ávextir:
Epli
Perur
Appelsínur
Tómatar
Jarðarber
Bláber
Avókadó
Fita:
Ólífuolía
Hnetur
Möndlur
Fræ
Hörfræolía
Canola olía
Góða helgi gott fólk !
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Lífstíll, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:15 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir listann, en hérna hvað ert þú að borða í hádeginu ? Mér finnst nefnilega svo erfitt að finna eitthvað sniðugt til að borða í vinnunni.
kv,
Elsa
elsa (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 14:27
Púff, fæ alltaf brunandi samviskubit þegar ég les skrifin þín!! Þú ert án efa duglegasta manneskja sem ég þekki;-) Ertu enn að æfa 10-12 sinnum í viku?? Sá nefnilega viðtal við einkaþjálfara á E Tv* sem vildi meina að það væri nauðsynlegt að hvíla a.m.k tvisvar í viku ef fólk vill byggja upp vöðvamassa?? Svo er það blessaður maturinn. Hvað ert þú að borða mikið prótín á dag? Ég veit að líkaminn þarf a.m.k 0,8 gr fyrir hvert kíló til að viðhalda sér en hvað er hæfilegt magn ef maður vill byggja rólega upp? Ég er nefnilega svo léleg í kjötinu og nenni ekki að éta fisk alla daga. Ég þoli illa mjólkursykur þannig að ég er algjöru basli. Finnst þér Myoplex léttara í magann en skyr?
Ok kannski að ég fari bara að panta hjá þér tíma;-)
Knús
Svana
*Geri mér fyllilega grein fyrir gæði heimildanna og vildi því spyrja sérfræðinginn:-) Gæinn hafði samt þjálfað leikara fyrir hlutverk til dæmis Nicholas Cage fyrir Conair ogfl. Cage var náttúrulega bara massaður í myndinni.
Svana (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 20:32
Geggjað flottur listi En hvað segir þú um hlutföllin? Hefur þú t.d. skoðað "Konulíkami fyrir lífið"? Hvað finnst þér þá um matarprógrammið þar?
Líka góðar spurningar hér að ofan. Ég er reyndar svo heppin að hafa nær alltaf klukkutíma hádegishlé og búa svo stutt frá vinnustaðnum að ég fer langoftast heim til mín og borða það sem ég á hér heima (sem ég reyni að hafa skynsamlegt ) En það væri semsagt gaman að heyra hvaða tillögur þú hefur varðandi hádegisverð vinnandi fólks
Og þessi hjá Svönu. Þegar ég byrjaði að æfa í haust þá lyfti ég fyrst 3x í viku, svo tók ég 3x í viku göngutúr með (og frí einn dag), næst bætti ég við (þegar veðrið var orðið óstöðugra og erfiðara fyrir útiveru) brennsluæfingum annan hvern dag og hélt áfram að lyfta 3x í viku á móti og hélt einum hvíldardegi inni. Á tímabili tók ég svo törn og mætti á morgnana í ræktina til að brenna en seinnipartinn til að lyfta á mán, þrið og fim, var í fríi á miðvikudögum en tók extra langa brennslu- og eða þrekæfingu einu sinni á föstudögum. Svo var ég í fríi á laugardögum en fór út í langan göngutúr á sunnudögum (eða skrapp í ræktina á þrekhjólið ef illa viðraði). Það var alltaf ætlunin hjá mér að fara á gönguskíði inn á milli en veturinn reyndist einstaklega óhagstæður til þess
Úps... nú er ég búin að skrifa alveg heila ritgerð - það var nú ekki ætlunin. Er semsagt líka forvitin að vita hvað þú segir um þetta með æfingarnar (fjölda og lengd) og hvíldir.
Óla Maja (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 23:45
Blessaðar allar saman. Gott að heyra að listinn var gagnlegur.
Long time no see Svana, verðum að fara að hittast!! Til að svara spurningu þinni þá er ég ennþá 2x á dag, brennsla á morgnana og lyfta seinnipartinn. Líkamsrækt er orðin hálfgerð fíkn hjá mér , ég geri mér fyllilega grein fyrir því , mér finnst ég vera skítug ef ég æfi ekki. En ég hvíli samt alltaf einn dag í viku, yfirleitt á sunnudögum.
Mín skoðun er sú að svo lengi sem líkaminn kvartar ekki þá er í lagi að æfa 2x á dag, og ég veit um fullt af fólki sem gerir það að staðaldri eins og ég. Hins vegar ef einkenni ofþjálfunar gera vart við sig þá á að minnka æfingarnar og jafnvel taka pásu í smá tíma. Maður á að hlusta á líkamann
Ragnhildur Þórðardóttir, 18.6.2007 kl. 09:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.