Gómsætur Hörpudiskur

Ég verð að deila með ykkur nýrri uppskrift sem var prófuð í eldhúsi Naglans í gærkvöldi. 

Var ekki alveg í stuði fyrir kjúklingabringu númer þrjú þúsund þennan mánuðinn svo það var fjárfest í frosnum hörpudiski í Bónus. 

Hörpudiskur er skelfiskur, mjög prótínríkur, hitaeiningasnauður (84 kal í 100g) og sérstaklega bragðgóður.

 

Innihald:

1 msk ólífuolía

skvetta af sítrónusafa

Timían krydd frá Pottagöldrum (má nota ferskt líka)

pipar

Salt-free Lemon-pepper (frá McCormick)

Sveppir

Skallottulaukur eða venjulegur laukur

200g hörpudiskur þiðinn, sigtaður og þerraður með eldhúspappír

Aðferð:

Blanda saman ólífuolíu, sítrónusafa, pipar, sítrónupipar og timjan saman í skál.  Marinera hörpudiskinn í c.a 30 mín.

Steikja sveppi og skallottulauk á þurri pönnu í 2-3 mín

Bæta marineruðum hörpudisk við og steikja í 4-5 mín.

 Bon appetit!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oh my, þetta hljómar ekkert smá vel. Hugsa að ég prófi þessa uppskrift um helgina. Er einmitt komin með nett leið á bringunum. :)

ingunn (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 10:13

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég var að gubba á bringuna, svo ég gramsaði bara á "Vöðvar með viðhorf" og fann þessa líka fínu uppskrift.  Svo eru engar kaloríur í þessu maður  en haugur af prótíni.

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.11.2007 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 549179

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband