Hjólastóll óskast

Tók svo hrikalega fótaæfingu í gær og gjörsamlega rústaði staurunum.   

Eigum við eitthvað að ræða harðsperrurnar í dag?  Nei ég hélt ekki!! 

Við erum að tala um að láta sig síga niður á klósettsetuna og gleymdu því að ég komist nokkurn tíma úr skónum því ég á ekki séns í að beygja mig fram. 

Hamurinn (aftanlærið) er í verkfalli í dag og framanlærið grenjar.

 Ætli ég geti stolið göngugrind hérna á Landsanum??  Eða hjólastól bara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vona að þú hafir komist heim heilu og höldnu með eða án hjálpartækja  Eiginmaðurinn getur þá væntanlega bjargað þér úr skónum fyrir nóttina.

Takk fyrir símatalið í gær  Stefnan er tekin til Sigga á morgun þar sem ég ætla að fjárfesta í próteini - hlakka rosalega til að smakka það.

Óla Maja (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 19:48

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Við elskum harðsperrur Óla Maja, ekkert betra en þegar maður er farlama af sperrum,  þá var allavega tekið á því .

Ekki málið með símtalið, bara any time ef ég get eitthvað hjálpað þér ekki hika við að bjalla eða sms-a.  Láttu mig endilega vita hvað þér finnst um prótínið hjá Sigga.  Segðu honum að ég hafi sent þig .  Súkkulaði kókos er best, venjulegt súkkulaði er líka algör snilld og hvítt súkkulaði með jarðarberjum er alveg eins og gamli jarðaberja sjeikinn .

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.11.2007 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 85
  • Frá upphafi: 549252

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband