Rétt hugarfar í líkamsrækt

 

 rétthugarfar

 

Rétt hugarfar skiptir öllu máli þegar kemur að því að ná árangri.  Þetta vita þeir sem hafa náð árangri í sinni þjálfun og líkamsrækt.

Maður þarf að temja sér ákveðinn hugsunarhátt til þess að ná langt í þjálfun, því stífar æfingar eru ekki bara líkamlega erfiðar heldur einnig hugarfarslega. 

Vinnan, fjölskyldan, félagslífið getur allt sett strik í reikninginn þegar kemur að æfingum eða að halda mataræðinu í toppstandi.

Æfingar á morgnana er skotheld leið til þess að tryggja æfingu dagsins.  Tilhugsunin um að rífa sig á lappir fyrir allar aldir er ekki girnilegur kostur í huga margra en staðreyndin er sú að ekki margt í lífinu kemur í veg fyrir æfingu kl. 6 að morgni. Hins vegar getur ýmislegt komið upp á yfir daginn sem gæti orðið til þess að æfing eftir vinnu sé látin sitja á hakanum.

Í líkamsrækt er nauðsynlegt að hugsa eins og skáti og vera "ávallt viðbúinn" óvæntum aðstæðum sem gætu truflað rútínuna.

Þeir sem ná árangri í líkamsrækt eru þeir:

  • sem fara vel og vandlega yfir tímaplanið sitt og sníða æfingaáætlun og mataræði í samræmi við það. 
  • undirbúa máltíðir dagsins kvöldið áður til að koma í veg fyrir:

að máltíðir detti út

að óhollustu sé neytt því ekkert annað sé í boði.

  • sem bæta upp ef æfing dettur út um morguninn, með því að æfa í hádegi, eða eftir vinnu.
  • sem velta sér ekki upp úr því ef æfing dettur út þann daginn, heldur halda sínu striki daginn eftir
  • sem bæta upp ef máltíð dettur út með því að borða eins fljótt og kostur er
  • láta ekki óvænta svindlmáltíð breytast í svindldag eða svindlviku. Í stað þess að hugsa "æi fokk it, dagurinn er hvort eð er ónýtur, ég fer aftur í hollustuna á morgun", byrja þeir strax aftur í hollustunni í næstu máltíð

 

Besti hugsunarhátturinn er forvörn, að reyna að koma í veg fyrir að við dettum út af sporinu.

En það er óhjákvæmilegt að eitthvað komi upp á sem raskar rútínunni og þá er mikilvægt hugsa um að laga skaðann í stað þess að leyfa pirringi og depurð að ná yfirhöndinni. 

 

Fólk sem nær árangri í líkamsrækt eru þeir sem leita að lausnum á vandamálunum.

Þeir sem ekki ná árangri eru þeir sem leita að afsökunum.

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

SAMMÁLA öllu!!!!   Vona að þér gangi þrusuvel á endaprettinum! Ji það er svo stutt eftir núna.  Þetta verður fljótt að líða. Mér gengur vel, geri allt þetta á listanum hér fyrir ofan ..hehe.. hef samt svolitlar áhyggjur af að vöðvarnir séu eitthvað farnir að rýrna.. hef grennst svo hratt á tveimur vikum! En nú er bara að lyfta, lyfta og lyfta meira! 

kær kveðja

Ester Júlía, 14.11.2007 kl. 09:20

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir það mín kæra og sömuleiðis.  Við neglum þennan endasprett og verðum hrikalegar á sviðinu eftir bara 10 daga....ó mæ god hvað það er stutt í þetta .  Ef þér finnst þú vera rýrna skaltu passa vel upp á að fá nóg prótín og jafnvel auka það pínu svo vöðvarnir verði nú stilltir og þægir á sínum stað .

Hlakka mikið til að sjá þig á sviðinu!! 

Ragnhildur Þórðardóttir, 14.11.2007 kl. 10:26

3 Smámynd: Ester Júlía

Hæ aftur .  Þú minntist á pósunámskeið...er það ekki hjá Heiðrúnu? Hvað kostar tíminn hjá henni?  Ég er reyndar með góða hjálp, Arnar G er að hjálpa mér með stöðurnar....gengur fínt nema #$%& bakstaðan er að plaga mig, hef ekki almennilega tilfinningu fyrir því hvernig ég á að vera...en það hlýtur að koma

Ester Júlía, 14.11.2007 kl. 13:18

4 identicon

Gaman að lesa síðuna þína.  Sammála þér í öreindir.  Haltu áfram á þessum nótum, mörgum mikil hjálp í að lesa það sem þú skrifar.

Fjóla Þorsteins (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 13:48

5 identicon

Aldeilis satt og rétt þetta. Persónulega fannst mér það skemmtilegasta við að lesa þetta að ég átta mig á því að ég VAR í hópnum sem fannst alltaf allt "vera á móti mér" í sambandi við líkamsrækt - lét semsagt það sem "kom uppá" stoppa mig af og datt endalaust í "fokk it" hugsunina

En í dag er ég í lausna-leitargírnum.. ef planið er ekki að ganga þá er það ekki afsökun, heldur verkefni sem þarf að finna útúr og leysa - eins og ég er að vinna í þessa dagana

Óla Maja (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 15:25

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

ster! Námskeiðið hjá Heiðrúnu er á þriðjudögum kl 21 í sporthúsinu, og þér er alveg velkomið að kíkja í einn tíma. Það er ótrúlega gagnlegt, því ef einhver kann pósurnar þá er það hún. Láttu mig vita það með %$## bakpósuna, hún er rosa erfið en hún hefur kennt okkur góð trix. Kíktu endilega!!

Fjóla, ástarþakkir fyrir hrósið. Alltaf gaman þegar fólk kann að meta blaðrið í mér.

Óla Maja! Þú ert svo innilega komin í rétta gírinn með þetta allt saman. Við finnum út úr þessari stöðnun þinni í sameiningu, ég veit að það er ekkert meira pirrandi þegar maður hamast og djöflast og #%&/ vigtin og % haggast bara ekki. Mann langar bara til að grenja!! Ekki gefast upp samt, finna lausnir frekar eins og þú segir ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 14.11.2007 kl. 16:00

7 identicon

Góður pistill

Mína (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 549185

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband