29.11.2007 | 11:13
Sperrur....eigum við að ræða það eitthvað?
Já fínt, já sæll.... eigum við eitthvað að ræða harðsperrurnar?
Ég hef nú bara sjaldan lent í öðru eins, allur skrokkurinn er í hönk og ég ennþá eftir að taka brjóst og bibb og tribb í vikunni.
Nú væri gaman að vita hvort það sé eðlilegt eftir mót að fá strengi sem eru ekki þessa heims. Lyfti reyndar ekkert frá miðvikudegi fram á mánudag, svo það er spurning hvort þessi nokkura daga pása hafi eitthvað að segja, eða hvort vöðvarnir séu bara eins og svampar eftir sveltið síðustu dagana fyrir mót. Hhhhmmm .... Naglinn þarf greinilega að leggjast í rannsóknir um þetta mál .
Er reyndar sterkari en terpentína þessa dagana og gat þyngt í nánast öllum fótaæfingum í gær.
Það er greinilegt að pizzu kvikindið og sykurinn úr 10 mojito-um frá því um helgina eru ennþá að synda í blóðrásinni. Eins og sést reyndar á bumbunni sem er ekkert að haggast. Fimm kíló á einni helgi taka víst sinn tíma að hypja sig .
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:14 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú mátt nú ekki gleyma að þú tókst rosalega vatnslosun fyrir mót þar sem skrokkurinn var gjörsamlega þurrkaður upp og partur af þessum fimm kílóum er bara vatn að koma til baka, sem á að vera til staðar
...og svo er stutt í næsta niðurskurð, kílóin fara alla vega pott þétt þá
Kristín Birna (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 12:59
Sammála Kristínu ! Þegar maður skoðar neðri mynd langar mann ekkert í FEITMETI svei mér þá hahahha . Hvíldu þig kona !
Fjóla (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 13:05
Úff - ég jesúsa mig bara í bak og fyrir yfir þessari mynd,,, enda verð ég viðkvæmari og meiri tepra með aldrinum!!!
Gaman að lesa pistlana þína! Keep up the good work
Mína (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 14:14
Naglinn hafði nú ekki í hyggju að hvíla sig neitt frá æfingum eftir mótið, enda mætt á hurðarhúninn í Hreyfingu kl. 6 á mánudagsmorgunn. Ég hló nú bara að þessum 5 kg sem hlóðust utan á mig yfir helgina, enda vissi ég að þetta væri að mestu leyti bara vökvi, bæði sem upp á vantaði og bjúgur eftir ósómann sem fór ofan í mig.
Ragnhildur Þórðardóttir, 29.11.2007 kl. 16:06
Sperrurnar eru sko alveg eðlilegar eftir allt sveltið ;) en það er um að gera að pína sig áfram og taka hrikalega á því ;) Vöðvarnir taka nefnilega rosalegan vaxtarkipp eftir svona svelt ef maður pínir þá áfram !
Nanna (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 16:11
Nanna! Takk fyrir þetta, var einmitt að spyrja út í sperrurnar og fékk svipuð svör hjá reyndum keppendum. Mér var einmitt sagt að lyfta eins og vindurinn núna því nú sé akkúrat tíminn sem vöðvatutlurnar stækka. Er núna bara í þungt þungt þungt og fá reps, og djö.... er ég að fíla það ;-)
Takk fyrir alla hjálpina á laugardaginn. Sjáumst svo hressar saman á sviðinu um páskana.
Ragnhildur Þórðardóttir, 29.11.2007 kl. 18:08
Þú er svo sannarlega NAGLI !
Fjóla (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 19:35
Ég get ekki ímyndað mér að þetta sem þú ert að gera sé hollt. Svelti og 5 kg á einni helgi. Það er ljóst að líkamanum vantaði eitthvað.
lesandi (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 21:01
Kæri lesandi, það eru bara þessir síðustu 2 dagar fyrir mót sem eru ekki hollir þegar maður borðar og drekkur minna en aðra daga. Þessi 5 kg er aðallega vökvasöfnun eftir að hafa borðað óhollt og þá verður vökvasöfnun. Að öðru leyti tel ég mig lífa mjög heilbrigðum lífsstíl, hreyfi mig mikið og borða vel og hollt alla aðra daga en þessa 2 fyrir keppni.
Ragnhildur Þórðardóttir, 30.11.2007 kl. 08:52
Ég var að spá í einu - ég las hérna einhverntímann um sykurlaus DaVinci sýróp frá Kaffitár. Ég nota alltaf svona í kaffið en í innihaldslýsingunni stendur "cane sugar".. Eru það einhverjar sérstakar týpur sem er alveg án sykurs? Eða er "cane sugar" einhverskonar gervisykur bara
Audrey, 30.11.2007 kl. 09:57
Ég geri mér grein fyrir því að þú lifir holt. Það er augljóst. Það sem ég er meira að spá í er bara hvort að þegar keppt er í fitness/vaxtarækt sé ekki farið yfir strikið. Eftir ´því sem ég hef lesið mér til þá er það víst ekkert óalgengt að stelpur hætti á blæðingum fyrir svona mót og fái dún hár á líkamann. Ef það gerist er líklegt að viðkomandi sé komin í anorexiu ástand. Viðkomandi nær e.t.v. ekki BMI mörkum vegna vöðvamassa en ástandið í líkamanum er ekki eðlilegt.
Semsagt hvenær erum við komin yfir strikið þannig að hollustan sé orðin óhollusta? Ég vil taka það fram að ég er ekki að beina þessu að þér sérstaklega heldur meira svona almennar pælingar.
Langar líka að vita hversu lengi er mögulegt að halda þeim skurð sem er á keppnisdegi?
lesandi (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 13:18
Ég myndi halda að meiri hluti almennings lifi mun óheilbrigðara líferni allt árið heldur en fitness keppendur í undirbúningi fyrir mót. Held að Sævar Ingi Borgarsson hafi skrifað ágætis pistil um þetta hérna einhver tímann.
Haukur (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 20:33
Þegar fituprósentan er orðin mjög lág líkt og gerist fyrir mót er hætta á að blæðingar kvenna hætti sökum ójafnvægis í hormónabúskapnum. En % er bara lág í nokkrar vikur því að eftir mót og "off-season" fara fitnesskeppendur aftur upp í %. Sumir reyndir keppendur hafa aldrei misst úr blæðingar, en sumir missa þær úr jafnvel í fyrstu keppni. Svo það er einstaklingsbundið eins og allt annað. Aldrei hef ég heyrt um dún hárin og gat ekki merkt slíkt á þeim sem kepptu með mér síðast, enda litu þær allar mjög hraustlega út. Fitnesskeppendur eru í "topp"formi á keppnisdag og halda því ekki nema í mjög stuttan tíma. Um leið og keppni lýkur og keppendur fá sér gott að borða og næstu vikuna þegar mataræðið er ekki eins stíft og fyrir keppni fer skurðurinn. Þegar keppt er í fitness/vaxtarrækt ertu ekki að ofbjóða líkamanum nema í mjög stuttan tíma, bara þessa 3 síðustu daga fyrir mót. Ég held að það sé mun óhollara að troða í sig hamborgurum og pizzum eins og margir landsmenn gera allan ársins hring en það sem fitness keppendur gera í 3 daga.
Ragnhildur Þórðardóttir, 2.12.2007 kl. 18:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.