London baby

Ástæða fyrir bloggleysi undanfarinna daga er sú að Naglinn ól manninn í Lundúnaborg um liðna helgi. 

Þar var að sjálfsögðu tekið vel á því í ræktinni um helgina, og Naglinn var samviskusamur og tók eingöngu lyftingaæfingar auðvitað. 

Það virðist vera að í heimsborginni eru menn ekki vanir því að sjá konur lyfta lóðum sé miðað við allt glápið sem Naglinn fékk frá karlpeningnum. 

Reyndar var Naglinn eina kvendýrið sem lét sjá sig hjá lausu lóðunum en kynsysturnar voru allar límdar við cardio-ið eða tækin. 

supergirl

 Þegar strapparnir voru svo reyrðir og þyngstu lóðunum í rekkanum slátrað í róðri náði glápið nýjum hæðum hjá Tjallanum og hefði eflaust ekki verið minna þó Naglinn hefði verið nakinn með hala að lyfta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin aftur

Mína (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 10:56

2 identicon

Hehehe...Naglanum hefur nú ekki þótt þetta leiðinlegt  

Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 13:45

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Nei ég viðurkenni það að Naglinn hefur lúmskt gaman að því að hneyksla lýðinn með djöfulgangi í ræktinni .

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.12.2007 kl. 14:02

4 identicon

Snillingur :D

Fannar Karvel (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 15:10

5 identicon

Frábært   Sé þetta alveg fyrir mér  Takk fyrir ábendinguna í sambandi við meiri mat. Auðvitað er ekki gott að svelta sig  Ég bara fór eftir matseðlinum mínum algjörlega eins og hann kom fyrir og mátti hafa mikið fyrir því að passa upp á að hafa það nauðsynlegasta með mér í vinnu og annað sem ég þurfti að ferðast á matmálstímum. Hvarflaði því ekki einu sinni að mér að bæta einhverju við því ég hafði ekkert extra með mér. En.. ég passa upp á þetta núna.

Óla Maja (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 549226

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband