Booty call

Fallegur rass segir heiminum að þú sért í góðu formi.  Hvern langar ekki til að vera með stinnan og fagurlega mótaðan afturenda?  Ekki einungis lítur maður betur út í móðins gallabuxum, heldur eru rassvöðvarnir sterkasti vöðvahópur líkamans og styðja við mænuna og koma í veg fyrir álag á hnén.  Veikir þjóhnappsvöðvar geta aukið líkur á bak og hné meiðslum.

Við byggjum upp fallega þjóhnappa með að virkja vöðvana og minnka fituna sem umlykur þá. 

Æfingar fyrir neðri líkamann byggja upp og móta rassvöðvana, og brennsluæfingar og rétt mataræði kötta burt fitu.

 

a9e01-Fawnia

Nokkrar styrktaræfingar sem sparka vel í rassinn... í bókstaflegri merkingu:

 

Hnébeygjur:  Konungur allra æfinga og móðir rassæfinga.  Hér er mikilvægt að fara djúpt niður til þess að virkja sem flesta vöðva og þá sérstaklega rassinn, "ass to grass" gott fólk!! 

 

Framstig:  Hér er einnig mikilvægt að stíga stórt skref fram á við og láta hnén nánast snerta gólf.  Spyrna til baka í gegnum hælinn.

 

Afturspark:  Fókusa á að sparka í gegnum hælinn.  Stjórna á leiðinni til baka og ekki fara alla leið til baka til að missa ekki spennuna í rassinum.

 

Uppstig:  Stíga vel í gegnum hælinn á þeim fæti sem stigið er í upp á bekk/kassa.

 

Þó ekki sé til neitt sem heitir staðbundin fitubrennsla þá getur rétt líkamsstaða á brennslutækjunum virkjað rassvöðvana betur.

 

þrekstigi

 

Hér eru nokkur ráð til að virkja rassinn sem best í cardio-inu:   

 

Hlaup/ganga upp brekku.  Það er mikilvægt að hællinn snerti jörðina fyrst í hverju skrefi en ekki tábergið.

Brekkan veitir mótstöðu og áreitið því ekki ósvipað því að lyfta og neyðir okkur til að lyfta fótunum á móti þyngdaraflinu sem byggir og styrkir vöðvana í neðri hluta líkamans.  Hér sláum við því tvær flugur í einu höggi.  Bæði brennum við hitaeiningum eins og mulningsvél en erum á sama tíma að byggja upp kálfa, læri og rass. 

 

Þrekstigi:  Halla sér pínulítið fram, taka stór skrefi, líkt og við séum að taka tvær tröppur í einu.  Rétta vel úr bakinu, skjóta rassinum út (eins og önd) og stíga í gegnum hælana, og virkilega finna fyrir hverju skrefi.  Með því að sleppa því að halda í handriðið erum við líka að virkja litlu jafnvægisvöðvana í rassinum, sem gerir æfinguna mun áhrifaríkari.

 

Skíðavél:  Rétta vel úr baki, ýta mjöðmum aftur svo rassinn skjótist út og reyna að stíga sem mest í gegnum hælinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað ég myndi gefa fyrir að vera með rass eins og á fyrstu myndinni, samt aðeins stærri

Er einmitt að fara á fótaæfingu i dag. Hef sjaldan sem aldrei gert framstig eða uppstig. Best að byrja á því

Takk fyrir góðan pistil.

Kv Eva 

Eva (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 14:39

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Segjum tvær...væri alveg til í svona kúlurass eins og skvísan þarna .  Ég tók einmitt fætur í morgun, fullt af beygjum, uppástigi og framstigi... nú skal kúlurassinn koma og hananú!!!

Mæli eindregið með framstigi og uppstigi fyrir rassinn, finnur vel fyrir þessum æfingum daginn eftir..... við erum að tala um sperrur dauðans .

Ragnhildur Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 14:45

3 identicon

Hnébeygjur eru máli!!!

 Hér getið þið lesið aðeins um þær og meira að segja séð video!

http://www.bodybuilding.com/fun/exercises.php?Name=Barbell+Full+Squat

Hjörtur Hjartarson (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:55

4 Smámynd: M

Einmitt æfingar sem við gerum hjá Auðbjörgu í Body shape Ættuð að sjá rassinn á mér  

En hvað með lærabaggana, sama hvað ég reyni. Alltaf með þessa vængi

M, 27.3.2008 kl. 16:08

5 Smámynd: Bjarney Bjarnadóttir

Ég er einmitt í hvíld frá beygjunum í bili, eða réttara sagt, tek frekar grunnar beygjur þar sem rassinn var aðeins kominn úr hlutfalli við restina, full afturstæður!! hehe en ég vil ekkert endilega að hann minnki, bara að lærin stækki uppí sömu hlutföll

 En mér finnst alltaf jafn fyndið þegar fólk labbar á bretti í halla, hangir svo í handföngunum þannig þau halla afturábak og eru beisiklí að labba aftur á jafnsléttu! Nema þau æfa nottla gripið til að passa uppá að detta ekki aftur fyrir sig...

Bjarney Bjarnadóttir, 27.3.2008 kl. 22:18

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

M!  Beygjur, Framstig, Uppástig, Fótapressa eru allt snilldar æfingar fyrir flott og stinn læri.  Svo auðvitað skiptir mataræðið máli og fitubrennsluæfingar.  Til dæmis HIIT á bretti, það er algjör brennslumaskína fyrir lærin.

Bjarney! Það er kannski þess vegna sem ég er á góðri leið með að fá útstæðan svertingjarass, er alltaf í djúpu beygjunum

Ótrúlega margir sem hanga á handföngunum og halla sér aftur á bak á brettinu.  Þá er hallinn á brettinu algjörlega óþarfur, nema til að friða samviskuna kannski.  Allavega er rassinn ekki að vinna vinnuna sína.

Ragnhildur Þórðardóttir, 28.3.2008 kl. 09:00

7 identicon

Djúpar beygjur, djúpar front beygjur, that's where it's at! 

Svo til að mæla árangurinn er nauðsynlegt að framkvæma "the pencil test" sem Hannah Johnson lýsir hér: http://asp.elitefts.com/qa/default.asp?qid=51151&tid=

Hér er svo æfingadagbókin hennar: http://asp.elitefts.com/qa/training-logs.asp?tid=131&__N=Hannah%20Johnson

Enjoy!

Fjölnir (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 549159

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband