Bananapönnukökur

Naglinn er ástfanginn.... af bananapönnukökum með hnetusmjöri. Þetta er nýja æðið, eftir að Naglinn fjárfesti í bananaprótíni frá Sigga. Kemst ekki í gegnum daginn nema að troða allavega einu stykki í andlitið á mér. Þær eru líka svo hrikalega einfaldar í matreiðslu: 5-6 eggjahvítur 1 msk mulin hörfræ 1 msk Scitec 100% banana prótín Hrært í blandara í 2-3 mín. Baka á pönnukökupönnu þar til loftbólur myndast, snúa við og baka í 30-60 sek á hinni hliðinni. Setja á disk Smyrja 1 tsk af hnetusmjöri yfir alla pönnsuna og njótið vel....mmmm

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð að prófa þetta, er samt virkilega gott að setja hnetusmjör á þetta (finnst að svo hryllilega vont)?

Jana (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Mér fannst hnetusmjör alltaf hálf þurrt og vont eitthvað en er alveg "hooked" núna. Nota bara alveg hreint hnetusmjör, ekkert transfitusykur drasl. Hnetubragðið og bananinn fara alveg ótrúlega vel saman.

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.6.2008 kl. 13:08

3 Smámynd: Audrey

Ohh ég öfunda svo ykkur sem finnst þessar eggjahvítupönnslur góðar!Ég er búin að gera margar tilraunir og finnst þetta svo mikið horror.  Og ætla ekki að prófa með bananabragði því ég borða ekki banana heldur.... erfið

Audrey, 9.6.2008 kl. 14:50

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég þarf að bjóða þér í pönnsukaffi einhvern daginn, ég er viss um að ég geti opnað augu þín fyrir gæðum þeirra. Af hverju borðarðu ekki banana? Finnst þér þeir vondir?

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.6.2008 kl. 15:00

5 Smámynd: Audrey

Já mér finnst bananir alveg ógeðis vondir.  Ég er mjög erfið í þessu   Ég þarf greinilega að smakka þetta hjá þér, það er alveg á hreinu svo maður geti vanist eggjahvítunum einhvernveginn með haustinu 

Audrey, 9.6.2008 kl. 15:21

6 identicon

Sæl, er með nokkrar spurningar sem ég er að spá hvort þú hafir svarið við þeim.. Stundum þegar ég er að lyfta með löppunum þá fæ ég krampa.. mikla krampa þannig ég þarf aðeins að bíða og fara útí horn og tárast smá :P

Síðan þegar ég tek Arnold pressu þá brakar í bakinu þegar hendurnar fara saman? Hefur þetta gerst hjá þér? Er þetta einhver vítamín skortur eða?

Kv Eva 

Eva (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 15:57

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hhhmm, varðandi krampann. Færðu hann í öllum æfingum eða bara ákveðnum æfingum? Er hann í kálfanum eða í lærinu? Er þetta eins og sinadráttur? Oft má rekja krampa til skorts á kalíum, bananar eru kalíumríkir, eða vökvaskorts.

Nei það brakar ekki í bakinu í Arnold en oft í niðurtogi og þá bæði í baki og olnbogum. Ef það er ekki vont þá skaltu ekki hafa áhyggjur. Bara einhver stirðleiki í liðum, gætir þurft að teygja meira á bakinu.

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.6.2008 kl. 18:51

8 identicon

Hvað er Arnold pressa? Svona fyrir almúgan?

Palli (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 08:10

9 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæll Palli, gerði einu sinni pistil um Arnold pressu:  http://ragganagli.blog.is/blog/ragganagli/entry/408198

 Hrikalega góð til að byggja upp fremri og miðjuhluta axlavöðvans.

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 09:12

10 identicon

Heyrðu ég fæ krampann alltaf í kálfann, fæ hann stundum þegar ég geri aftaná læris æfinguna (man ekki hvað tækið heitir )

Þetta er ekki eins og sinadráttur, mjög sársaukafullt þegar gerist.

Hm já nú verð ég að viðurkenna að ég hef aldrei teygt á bakinu.. því ég hef ekki hugmynd hvernig á að gera það

 Kv Eva

Eva (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 12:03

11 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Getur verið að þú sért að spenna kálfann of mikið í þessari æfingu?  Það er mjög auðvelt að kreppa hann of mikið þegar við tökum hamstring (aftan lærið).  Prófaðu næst að rétta úr ristinni, bæði er það erfiðara og þannig tekurðu kálfann úr umferð og fókusar bara á hamstring-inn.

Teygjur á bakinu eru til dæmis að halda í rimla vítt grip (latsar) og þröngt grip (herðablöð) og halla sér aftur, eða láta sig hanga úr efstu rim.

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 15:05

12 identicon

Hvar pantaru Sci-tec próteinið?

Hrund (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 15:27

13 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hjá Sigga í Vaxtarræktinni, s. 462 5266, eða hjá Heiðrúnu s. 869 2971. Siggi sendir þetta með póstinum og þetta er komið daginn eftir heim til þín. Heiðrún er staðsett í Reykjavík og þú mælir þér bara mót við hana. Ég nota bara þetta prótín, þvílíkt gómsætt að manni finnst maður vera að svindla.

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 549178

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband