28.5.2009 | 11:06
Ávaxtasafar....sykurbombur í felulitum
Ávaxtasykur finnst í miklu magni í djús/safa. Flestir safar innihalda 8-10 grömm af sykri í einu glasi (200 ml).
Ávaxtasykur hefur aðra efnafræðilega samsetningu en strásykur en báðir virka eins á líkamann: of mikið magn er fitandi.
Eitt glas á dag er algjört hámark. Fyrir kyrrsetufólk sem ekki hugsar mikið um mataræðið ætti að takmarka neyslu við nokkur skipti á viku.
Skársti kosturinn er safi með ávaxtakjöti, því þegar það er sigtað frá fjarlægjast mikilvæg snefilefni og vítamín.
Mælt er með að fólk borði frekar ávexti en að drekka safa. Safar metta ekki eins vel og ávextir. Maður er líka miklu fljótari að fá alltof mikinn ávaxtasykur í gegnum safadrykkju en að borða ávexti. Fæstir borða 6 appelsínur í einu, en eiga ekki í vandræðum með að slurka í sig safa frá 6 appelsínum.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 7
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 550749
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Af því að ég er ólétt og hef misst lyst á mörgu sem mér þótti gott þá hef ég verið að fá mér eina máltíð á dag sem hljóðar svo: 2 kreistar appelsínur, jarðarber, bláber og svo mismunandi hvað ég á en yfirleitt ananas/mangó/blandaðir suðrænir ávextir og mauka þetta svo í blender ásamt klökum ef ég vil hafa þetta næstum frosið. Er ég að rústa matarræðinu með þessu? - vona ekki.
Soffía, 29.5.2009 kl. 01:25
Nei þú ert ekki að rústa mataræðinu með þessu Soffía. Langt frá því.Þú ert með trefjarnar í bústinu, það er ekki það búst og safi. Safinn er bara vökvinn úr ávextinum en bústið gefur þér allan ávaxtasafann.
Ragga þú ert flott, ég er ekkert alltaf sammála þér en mér finnst gaman að lesa það sem þú skrifar :-)
Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 09:46
vá hvað setningarnar fóru í rugl... Ég átti við að það er ekki það sama - búst og kreistur safi því þú heldur öllum eiginleikum ávaxtarins í bústinu en ekki í safanum.
Spurning um að fara réttum megin fram úr á morgnanna :-)
Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 09:48
Vatn er drykkur dagsins Jóhanna. Ég mæli ekki með neinu öðru með matnum, nema þá kannski rauðvínsglasi um helgar ha ha...
Soffía, nei þú ert ekki að rústa mataræðinu - þú ert að nota heila ávexti sem er allt annað mál.
Unnur, það er bara hressandi að þú ert ekki alltaf sammála mér, fólk hefur mismunandi skoðanir og meiningar um allt. Takk fyrir innlitið og kvittið.
Ragnhildur Þórðardóttir, 29.5.2009 kl. 11:13
Hvað með hreint sódavatn einsog hvítan topp eða bláan kristal er það eitthvað sem þarf að drekka í hófi? Ég drekk eflaust 1/2 til 1 lítra á dag og þess fyrir utan vatn og kaffi. Er það eitthvað sem ég þarf að endurskoða?
Lesandi (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 11:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.