31.1.2008 | 14:19
Draumfarir Naglans
Dreymdi að ég hefði farið á æfingu í World Class en það voru einhverjar framkvæmdir í gangi í stöðinni svo öll tækin höfðu verið færð í einhvern bílskúr úti í bæ.
Nema að þegar Naglinn mætir í skúrinn þá er bara ekki kjaftur að æfa.
Svo Naglinn byrjar að hamra á járninu, og man sérstaklega að ég var að taka standandi axlapressu. Nema svo fæ ég þessa skemmtilegu hugdettu að fyrst ég er ein á svæðinu að þá sé best að snara sér úr að neðan og æfa á nærbrókinni, sem nota bene voru gamlar Sloggi.
En þar sem ég er í miðri pressu sé ég í speglinum að það kemur fullt af fólki inn í skúrinn fína, og ég stend í miðju repsi með rassinn út í vindinn.
Í ljósi slíkra draumfara má alveg spyrja sig hvort allar sellurnar í heilabúi Naglans fúnkeri rétt.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahahahaha.......
Hrund (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 15:43
Tókstu ZMA eftir nýrri strategíu í gær, margir eiga það til að fá ansi súra drauma þegar þeir eru að taka þetta inn.
Haukur (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 19:04
Já reyndar tók ég ZMA eftir þinni strategíu í gærkvöldi. Það er líklega skýringin en ekki tap á glórunni. Takk fyrir ábendinguna.
Ragnhildur Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 20:44
HAHAHAHA ein spurning.. hvernig datt þér í hug að æfa á nærbrókinni??
Kv Eva
Eva (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 00:34
Ég veit það ekki, þetta er kannski eitthvað leynt "fetish" hjá mér að æfa hálf-nakin. Hef ekki fundið fyrir þessari löngun í vöku hins vegar, gæti ekki einu sinni æft á stuttbuxum sökum læra - komplexa .
Ragnhildur Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 08:53
Greinilega allt orðið steikt í toppstykkinu, velkomin í hópinn
Fannar Karvel (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 09:38
Skil ekki eitt, hvernig geturu verið með læra komplexa og þú lítur svona vel út og keppir í fitness. Verður maður aldrei sáttur við sig sama hvað maður æfir mikið?
kalli (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 11:31
Iss eru ekki allir með einhverja komplexa á þessu bulk tímabili? Svo æfir maður bara á lærunum á keppnisdegi, ekki fyrr
Flottar naríur samt
Audrey, 1.2.2008 kl. 11:35
Kalli. Takk fyrir falleg orð. En sammála Audrey, ég held að hver einasta kona sé með einhverja komplexa , alveg sama hve vel hún lítur út. Meira að segja þrautþjálfaðir fitness keppendur til marga ára. Líka hafi maður einhvern tíma verið feitur, þá er erfitt að koma þeirri mynd úr hausnum, sama hvað spegillinn segir.
Ragnhildur Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 14:04
"Líka hafi maður einhvern tíma verið feitur". Hvað meinarðu með þessu, varstu mikið yfir kjörþyngd?
Guðrún (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.