Draumfarir Naglans

Dreymdi að ég hefði farið á æfingu í World Class en það voru einhverjar framkvæmdir í gangi í stöðinni svo öll tækin höfðu verið færð í einhvern bílskúr úti í bæ.

Nema að þegar Naglinn mætir í skúrinn þá er bara ekki kjaftur að æfa. 

Svo Naglinn byrjar að hamra á járninu, og man sérstaklega að ég var að taka standandi axlapressu.  Nema svo fæ ég þessa skemmtilegu hugdettu að fyrst ég er ein á svæðinu að þá sé best að snara sér úr að neðan og æfa á nærbrókinni, sem nota bene voru gamlar Sloggi. 

sloggi 2

En þar sem ég er í miðri pressu sé ég í speglinum að það kemur fullt af fólki inn í skúrinn fína, og ég stend í miðju repsi með rassinn út í vindinn.

Í ljósi slíkra draumfara má alveg spyrja sig hvort allar sellurnar í heilabúi Naglans fúnkeri rétt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahahaha.......

Hrund (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 15:43

2 identicon

Tókstu ZMA eftir nýrri strategíu í gær, margir eiga það til að fá ansi súra drauma þegar þeir eru að taka þetta inn.

Haukur (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 19:04

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já reyndar tók ég ZMA eftir þinni strategíu í gærkvöldi. Það er líklega skýringin en ekki tap á glórunni. Takk fyrir ábendinguna.

Ragnhildur Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 20:44

4 identicon

HAHAHAHA ein spurning.. hvernig datt þér í hug að æfa á nærbrókinni??

Kv Eva 

Eva (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 00:34

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég veit það ekki, þetta er kannski eitthvað leynt "fetish" hjá mér að æfa hálf-nakin.  Hef ekki fundið fyrir þessari löngun í vöku hins vegar, gæti ekki einu sinni æft á stuttbuxum sökum læra - komplexa .

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 08:53

6 identicon

Greinilega allt orðið steikt í toppstykkinu, velkomin í hópinn

Fannar Karvel (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 09:38

7 identicon

Skil ekki eitt, hvernig geturu verið með læra komplexa og þú lítur svona vel út og keppir í fitness. Verður maður aldrei sáttur við sig sama hvað maður æfir mikið?

kalli (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 11:31

8 Smámynd: Audrey

Iss eru ekki allir með einhverja komplexa á þessu bulk tímabili?  Svo æfir maður bara á lærunum á keppnisdegi, ekki fyrr

Flottar naríur samt

Audrey, 1.2.2008 kl. 11:35

9 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Kalli.  Takk fyrir falleg orð.  En sammála Audrey, ég held að hver einasta kona sé með einhverja komplexa , alveg sama hve vel hún lítur út.  Meira að segja þrautþjálfaðir fitness keppendur til marga ára.  Líka hafi maður einhvern tíma verið feitur, þá er erfitt að koma þeirri mynd úr hausnum, sama hvað spegillinn segir. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 14:04

10 identicon

"Líka hafi maður einhvern tíma verið feitur". Hvað meinarðu með þessu, varstu mikið yfir kjörþyngd?

Guðrún (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband