10.6.2008 | 09:45
Einblínt á lausnir en ekki vandamálið
Einhvern tíma skrifaði Naglinn um að þeir sem ná árangri eru þeir sem hugsa í lausnum frekar en að hengja sig á vandamálið.
Til dæmis ef þeir sjá fram á annasaman dag í vinnunni, reyna þeir að fara í ræktina fyrir vinnu eða í hádegishléinu.
Ef þeir komast ekki í ræktina, reyna þeir að bæta sér það upp næsta dag.
Ef þeir missa úr máltíð, bæta þeir sér það upp í næstu máltíð og passa að ná inn öðrum máltíðum dagsins.
Semsagt gefast ekki bara alfarið upp þó æfing eða máltíð detti út og detti í sukkið eða æfi ekki í viku. Reyna að finna aðrar lausnir til að koma inn æfingu eða máltíð þegar erfiðar aðstæður koma upp.
Með þetta hugarfar fór Naglinn í ræktina í morgun, haltrandi á einni löpp.
Ökklinn hefur verið með einhverja stæla undanfarna daga en Naglinn hefur ekki hlustað á svoleiðis kjaftæði og hlaupið samt. Í morgun svaraði ökklinn með mótþróaþrjóskuröskun og leyfði ekki að setja neinn þunga á sig.
Nú voru góð ráð dýr. Ekki séns að Naglinn ætlaði að sleppa morgunbrennslu svo ökklinn var klæddur í teygjusokk og svo var kannað hvort hann samþykkti ekki þrekstigann í Laugum.
Jú það gekk upp, kvikindið kvartaði rétt aðeins fyrst en þagnaði svo og Naglinn gat klárað sína brennslu í friði.
Í stað þess að væla: "Ohh, ökklinn er bilaður, ég get ekkert æft." var hugsað í lausnum: "Ökklinn er bilaður, hvaða æfingar get ég gert með hann svona?"
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jáá that's the spirit! Gaman að sjá að það eru fleiri svona..
Ég á einmitt við öklavandamálum að stríða.. en hef kosið að gera þetta vandamál að seinnitímavandamáli Hef nægan tíma til að gráta í ellinni..
Það er oft með svona meiðsl að maður finnur minnst fyrir þeim á meðan maður hleypur.. það er svona helst daginn eftir.. en þá í versta falli fær maður sér eina bólgueyðandi og þá er maður góður obsession? eða dedication?
Elísa (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 11:43
Einmitt, maður fær aldeilis á baukinn daginn eftir. Ég gat svosem sagt mér það sjálf, var farin að haltra undir lokin á hlaupunum í gærmorgun .
"Obsessed is what the lazy call the dedicated"
Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 13:26
En það verður nú að gæta hófi í að pína sig áfram og vita hvenær á að stoppa. Langvarandi áverkar byrja alltaf sem smáskeinur.
Palli (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 14:35
Jú jú, hárréttur punktur.... . Fékk aldeilis að finna fyrir því með öxlina nýlega, rotator cuff-inn var búinn að vera að kvarta ansi lengi en ég djöflaðist samt. Nema hvað, var gjörsamlega að drepast í nokkrar vikur og þurfti að sleppa alls konar æfingum á meðan ég var að styrkja hann og leyfa honum að jafna sig.
Núna ætla ég ekkert að hlaupa í nokkra daga og sjá hvort þetta lagist ekki. Stundum er betra að hvíla ákveðnar æfingar í nokkra daga í staðinn fyrir að þurfa svo að hvíla allt heila draslið í marga mánuði vegna meiðsla.
Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 14:39
Sæl Ragga, annað sem ég ætlaði að spyrja þig að.. í einhverjum pistli fyrir slatta síðan þá varstu að tala um lyftingar á baki.. vítt grip og þröngt grip.. ef mig minnir rétt? Hver var aftur ástæðan á þessu?
Kv Eva og takk fyrir góð svör ;)
Eva (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 19:30
Hey skvís, ég skal bara skrifa nýjan pistil um bakæfingar. Fín hugmynd. Takk fyrir að lesa.
Ragnhildur Þórðardóttir, 10.6.2008 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.