Næstum því KFC

Hráefni: 

Kjúklingabringa

Hakkaðar möndlur (u.þ.b 20 g er nóg fyrir eina meðalstóra bringu)

Hveiti/spelt hveiti

Eggjahvíta

Svartur pipar + Salt (má sleppa)

Aðferð:


Settu hveiti/spelt á disk, möndlur á disk og eggjahvítu í skál. 

Veltu kjúklingabringunni upp úr hveiti/spelti þar til hún er þakin. 
Dýfðu bringunni í eggjahvítu og veltu henni síðan yfir möndlurnar svo þær þeki hana nokkurn veginn.  Kryddaðu með salti og svörtum pipar. 
Bakað í ofni á c.a 170-200° í 15-25 mín (bökunartími fer eftir ofni).

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Namm namm  Verð að prufa þennann

Hvar finn ég þig á Facebookinu ? Undir Ragga, Ragnhildur, Nagli ? 

M, 6.8.2008 kl. 15:34

2 Smámynd: M

Fann þig

Sendi þér beiðni. Fyrsti stafurinn í nafninum mínu er M  Who would have know´n that ? 

M, 6.8.2008 kl. 16:07

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Er Ragnhildur Þórðardóttir á Facebook. Allir að "adda" mér!!

Er búin að "confirma" þig M mín.

Ragnhildur Þórðardóttir, 6.8.2008 kl. 19:36

4 identicon

mmm.... þetta hljómar vel! Ég gæti meira að segja gert þetta, ég er dálítið latur kokkur ;)

Snjólaug (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 08:34

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Einmitt, alveg ótrúlega einfalt.  Ég er líka ótrúlega löt að elda, nenni engu veseni. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 7.8.2008 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 549178

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband