24.4.2007 | 13:54
Hreinn Loftsson....where are you?
Fór í spinning í morgun sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að tíminn var troðfullur og loftræstingunni verulega ábótavant, ef hún var þá yfir höfuð í gangi. Það var svo heitt og mollulegt í salnum að það láku af mér fleiri, fleiri lítrar af svita, og eftir tímann voru fötin mín svo rennandi blaut að það leit út eins og ég hefði farið í sund eða blautbolakeppni í þeim. Það er held ég fátt óþægilegra en að labba heim í meðvindi með rennandi blautan rass.
En þessar raunir mínar úr spinning í morgun eru hjóm eitt samanborið við þau skilyrði sem starfsmönnum í göngum Kárahnjúkavirkjunar er boðið upp á þessa dagana.
Þar er loftið svo mikill viðbjóður að fullhraustir menn verða veikir á örfáum dögum og fá einkenni astma og andþyngsli.
Gríðarlegur hiti er þarna niðri, og loftið mengað af drullu og óþverra. Grundvallarmannréttindi eins og hreint drykkjarvatn er ekki á boðstólum, og sleikja menn veggina til að svala þorsta sínum. Það er kannski ágætt að þeir séu ekki að drekka of mikið vatn því enginn staður er í göngunum til að kasta af sér þvagi og saur. Sem getur þó orðið hvimleitt vandamál þegar menn fá bæði uppköst og niðurgang af matnum sem þeim er boðið upp á.
Ætli það sé festur þvagleggur, stómapoki og ælupoki á verkamennina áður en þeir fara niður í göngin??
Það er spurning hvort það ætti að prófa að hafa einn spinningtíma í göngunum við Kárahnjúka og sjá síðan hvort fólk kvarti jafnmikið yfir lélegu loftræstingunni í Hreyfingu.
Naglinn | Breytt 10.11.2008 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 09:16
Af hverju ekki nammidagar með ZERO bumbu??
Alltaf jafn gaman á mánudögum, eða þannig....Rassinn er heldur sunnar en hann var fyrir helgi, og bumban skríður yfir buxnastrenginn. Franska súkkulaðikakan og fleiri ljúffengar veitingar í matarboðinu runnu einum of ljúflega niður á laugardagskvöldið. Að sjálfsögðu tók græðgin öll völd eins og vanalega og það var nartað svolítið í leifarnar á sunnudaginn yfir síðasta þættinum af Prison Break. Hann endaði nú ekki alveg nógu vel fyrir Scofieldinn minn. Nú bíður maður bara spenntur hvort að það komi ekki 3. sería, allavega gaf endirinn það til kynna.
Ég skráði mig til keppni í Þrekmeistaranum í morgun, svo nú verður allt gefið í botn enda ekki nema 12 dagar til stefnu. Ég verð hæstánægð með að bæta tímann minn frá því í haust, en annars ætla ég ekki að vera með neinar yfirlýsingar um hvert takmarkið er, því þá lít ég bara illa út ef það næst ekki.
Armbeygjurnar eru ennþá slappar hjá mér, en þessir spaghettí handleggir mínir linast bara upp eftir 15-20 armbeygjur og geta bara ekki meir nema að hvíla smá stund. Þetta fer ekki lítið í taugarnar á mér og ég þrjóskast bara á móti þar til ég get ekki meir .
Hins vegar hef ég bætt mig talsvert bæði á róðravélinni og á þrekhjólinu en eftir að ég byrjaði að æfa í Klassanum hef ég tekið þessi tvö tæki á hverjum degi. Vonandi vinna þau á móti slappleikanum í armbeygjunum .
Naglinn | Breytt 4.11.2008 kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.4.2007 | 09:07
Fitness og Þrekmeistarinn....not the same thing
Skrýtin tilviljun en um síðustu helgi spurðu mig tvær manneskjur hvort ég hefði verið að keppa í fitness um páskahelgina. Báðar höfðu þær ruglað saman Fitness og Þrekmeistaranum, og af því tilefni vil ég útskýra nánar hvað felst í þessum tveimur keppnum og muninn á þeim.
Í Fitness er farið í gegnum hindranabraut, og í sumum keppnum keppa konur sín á milli í armbeygjum og karlar í upphífingum og dýfum.
Síðan er samanburður þar sem kvenkyns keppendur koma fram á bikiníi og/eða sundbolum og karlar á sundskýlum. Dómarar meta bestu líkamsbyggingu keppenda út frá skurði, brúnku, samræmi milli hægri og vinstri/efri og neðri skrokk, og fleiru sem ég kann ekki að segja frá.Í Þrekmeistaranum er keppt í 10 greinum í kapp við klukkuna. Greinarnar eru eftirfarandi:HjólRóðravélNiðurtogFótalyfturArmbeygjurUppstigUppseturAxlapressaHlaupabrettiBekkpressaEkki eru gerðar kröfur um líkamsbyggingu né klæðaburð í Þrekmeistaranum. Fólk má þess vegna keppa í jólasveinabúning, næpuhvítt og með aukakíló, svo lengi sem það er í góðu formi og getur klárað brautina á sæmilegum tíma. Ef einhver sprengir sig í miðri braut þá verður hann að hætta keppni ef sá sem var ræstur á eftir honum nær honum inni í brautinni. Það er því nauðsynlegt að vera í góðri þjálfun fyrir Þrekmeistarann og passa að sprengja sig ekki í byrjun keppni.Ég vona að fólk átti sig nú á muninum á þessum tveimur keppnum en ég stefni semsagt á keppni í Þrekmeistaranum þann 5. maí n.k.Fitness-undirbúningur | Breytt 3.11.2008 kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2007 | 13:41
Offita-part 2
Svo ég blaðri nú enn meira um offitu, en ég var að lesa viðtal í Sirkus ónefndan pólitíkus Hann kom víst í Kastljós um daginn ásamt Geir H. Haarde og einhverjum fleirum pólitíkusum og hann þurfti að sitja í öðruvísi stól af því hann passaði ekki í hina.
Er það ekki ágætis vísbending um að menn þurfi að grenna sig þegar panta þarf sérsmíðuð húsgögn fyrir þá?
Hann segir í viðtalinu að hann sé við hestaheilsu, en þó honum líði ekki illa þá er svona mikil yfirþyngd mjög hættuleg heilsunni.
Í fyrsta lagi er offita ein og sér er til dæmis sjálfstæður áhættuþáttur fyrir hjartasjúkdóma. Það kom í ljós í hóprannsókn Hjartaverndar að því hærri sem þyngdarstuðullinn (BMI) er því meiri líkur á dauðsföllum úr hjarta og æðasjúkdómum.
Svo er mikil hætta fyrir fólk í yfirþyngd að fá áunna sykursýki, kæfisvefn og ýmis stoðkerfisvandamál.
Þó manninum líði ekki illa líkamlega og finnist hann vera stálhraustur, þá getur samt ýmislegt verið að gerast í skrokknum sem hann er ekki meðvitaður um.
Algengar afleiðingar offitu og ofþyngdar eru hækkaður blóðþrýstingur, hækkuð blóðfita, hækkað kólesteról og allir þessir þættir auka verulega líkur á hjarta-og æðasjúkdómum eins og kransæðastíflu og hjartabilun.
Hár blóðþrýstingur er líka yfirleitt einkennalaus og fólk veit ekki af því fyrr en við reglubundið eftirlit hjá heimilislækni að hann sé orðinn of hár.
Fólk á því að taka offitu sína alvarlega og gera eitthvað í málunum.
Af viðtalinu að dæma virtist téður náungi ekki hafa uppi nein plön um að minnka mörinn.
Það kom líka fram í viðtalinu að hann hefði borðað einn banana um morguninn og síðan ekki neitt fyrr en um kvöldið.
Svona máltíðamynstur er náttúrulega bara út úr kortinu.
Þegar líður of langt milli máltíða hægist á brennslunni, og líkaminn rígheldur í fituforðann en notar í staðinn prótín úr vöðvavef fyrir orku.
Þegar borðað er óreglulega fellur blóðsykurinn niður í rassgat sem gerir það að verkum að fólk verður svo hungrað og máttlaust líkaminn öskrar á sykur því það er skjótfengnasta orkan, en hvítur sykur skilar sér mun hraðar út í blóðið en aðrar fæðutegundir, og því fær fólk sér mjög oft sælgæti til að ná upp blóðsykrinum og þrótti.
Einnig er hætta á að næsta máltíð verði mun stærri en æskilegt er, sökum hungurs, og líkaminn nær ekki að nýta þá orku, sérstaklega ef þessi stóra máltíð er á kvöldin, eins og oft vill verða. Umframmagn hitaeininganna breytist þá í fituvef.
Mælt er með að fólk borði smáar máltíðir á 2-3 klukkutíma fresti yfir daginn til að halda blóðsykri og insúlíni í jafnvægi og halda hungri í skefjum.
Það er ekki í tísku lengur að vera svangur.
Góða helgi gott fólk!!
Mataræði | Breytt 10.11.2008 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2007 | 09:56
Laugar...here I come
Það hljóp aldeilis á snærið hjá Naglanum í gær. Fór í Mekka líkamsræktar (a.k.a World Class) og ætlaði að kaupa mér mánaðarkort sem nota bene kostar heilar 10 þúsund krónur, en ég var alveg búin að réttlæta þau fjárútlát fyrir sjálfri mér. Þegar ég rétti afgreiðsludömunni debetið spyr hún mig að þar sem hún sjái að ég sé í Vörðunni, hvort ég vilji ekki nýta mér tilboðið þeirra á 3 mánaða korti á 15.500 fyrir Vörðufélaga. Að sjálfsögðu vidli ég það, svo nú mun Naglinn hrista skankana bæði í Laugardalnum og Faxafeninu næstu 3 mánuðina. Já, Landsbankinn sér um sína.
Tók svo hrikalega fótaæfingu í Laugum í gær, og notaði fullt af nýjum tækjum sem ekki eru í Hreyfingu, eins og ólympíska fótapressu, Hack squat vélina, og fótacurl ein í einu. Það voru greinilega einhverjir vöðvar í fótunum vaktir upp af værum blundi sem ekki hafa verið virkjaðir lengi, því þær gráta í dag.....sem er gott.
Ég er ótrúlega sátt við þessa fjárfestingu mína, enda fann ég það í gær hvað það er gott að breyta um umhverfi, sjá ný andlit og nota ný tæki. Þegar maður æfir 2x á dag alla daga vikunnar í sömu stöð, þá er nánast garanterað að maður fái leið á stöðinni. Það getur smitast út sem leiði á æfingunum og þá er hætta á að maður nenni ekki lengur á æfingu.
Fór reyndar í morgun í Hreyfingu í spinning sem er á þriðjudögum og fimmtudögum en ég er alveg háð þeim enda frábærir tímar. Þvílík brennsla og ekki þurr þráður á manni eftir tímann.
Naglinn | Breytt 3.11.2008 kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2007 | 11:46
Timing is everything
Mikið er gott að vera komin aftur í rútínulífið eftir frídagana, æfa, borða, sofa á réttum tímum. Ég var alveg í vímu í gær eftir að hafa komist aftur 2x á dag í ræktina og í mitt venjulega mataræði. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvað reglubundið líferni veitir mér gríðarlega hugarró. Líf mitt er mjög rútínubundið og lífsstíll minn krefst gríðarlegrar skipulagningar. Yfirleitt er ég búin að plana margar vikur fram í tímann hvenær ég æfi, borða, hvíli mig o.s.frv. og geri yfirleitt aldrei neitt nema að velta því fyrir mér lengi og vega og meta kosti og galla áður en ég tek ákvörðun. Allt sem ég geri er nefnilega ákveðnum tímalegum skilyrðum háð. Tímasetningar eru mjög mikilvægar í mínu lífi, eiginlega svo mikilvægar að það jaðrar við áráttu-þráhyggju og gerir mig að mjög takmarkaðri og hreinlega leiðinlegri manneskju.
Til dæmis get ég ekki farið í bíó nema um helgar. Í fyrsta lagi get ég ekki farið í bíó kl. 18 því þá er kvöldmatartími. Í öðru lagi þarf ég að vera farin að sofa fyrir kl. 22 á kvöldin til að geta vaknað kl. 5.30 á morgnana til að brenna. Átta tíma svefn er lágmark fyrir mig. Það má samt alls ekki breyta svefntímanum og fara til dæmis að sofa kl 23 eftir bíó og vakna kl. 6.30 til að brenna því þá riðlast allt matarprógrammið yfir daginn um heilan klukkutíma. Um helgar opnar ræktin ekki fyrr en kl. 8 og þá er í lagi að fara aðeins seinna að sofa og því hægt að fara í bíó kl. 20.
Ég get ekki borðað kvöldmat seinna en kl 19.30 því það verða að líða allavega 2 tímar frá því ég borða þar til ég fer að sofa. Það mega heldur ekki líða meira en 2 tímar frá máltíð að æfingu.
Yfir vikuna borða ég bara mat sem ég elda sjálf og því er ekki hægt að fara út að borða eða í matarboð í miðri viku, bara um helgar þegar er nammidagur og þá bara ef ég hef ekkert svindlað yfir daginn.
Ég á mjög erfitt með að fara í löng frí því þá riðlast æfinga og matarprógrammið, og ég verð helst alltaf að geta komist í ræktina á þeim stað sem ég er. Ég á líka mjög erfitt með að gista á hótelum, og vil frekar vera í íbúð með eldhúsi því ég verð helst að geta eldað minn hafragraut og mínar eggjahvítuommilettur.
Stundum skil ég ekki alveg hvernig Snorri minn nennir að vera með svona takmarkaðri og uppskrúfaðri konu, sem getur bara farið í bíó og út að borða á ákveðnum dögum, en hann er nú svosem orðinn vanur þessu.
Eins og sést á þessum pistli þá ætti ég kannski betur heima á stofnun þar sem ég klæðist hvítum jakka með löngum ermum sem ná aftur fyrir bak.
Naglinn | Breytt 3.11.2008 kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2007 | 09:28
I never met a calorie I didn't like
Jæja páskarnir liðnir og það er ekki laust við smá eftir-frís niðurfall (post holiday blues) hjá Naglanum eftir að hafa spókað sig um götur Berlínarborgar yfir hátíðirnar. En nú tekur hversdagurinn við, og að sjálfsögðu þarf Naglinn að taka á honum stóra sínum í ræktinni til að losna við lýsið sem hlóðst upp í Þýskalandsförinni, því ekki voru eggjahvítur á boðstólum þar ónei. Hitaeiningafjöldinn sem innbyrtur var í þessari ferð í formi páskaeggja, morgunverðarhlaðborðs, tyrkneskra kræsinga hleypur eflaust á milljónum.
Fór reyndar í ræktina þarna úti á laugardagsmorgninum og ætlaði á mánudagsmorgun líka en það datt upp fyrir og engin afsökun fyrir því önnur en leti og ég er ennþá reið út í sjálfa mig yfir því.
Nú verður aldeilis spýtt í lófana enda eru bara tæpar 4 vikur í Þrekmeistarann. Ég ætla að splæsa á mig mánaðarkorti í World Class, því aðstaðan þar til að æfa brautina er miklu betri en í Hreyfingu. Í WC eru flest tækin úr brautinni á sama svæðinu og kassinn fyrir uppstigið í réttri hæð, og þessi fína róðravél en ekki veitir mér af að púla aðeins á henni. Ég er líka komin með pínu leið á að æfa alltaf á sama stað og því verður fínt að breyta aðeins um umhverfi og sjá ný andlit.
Naglinn | Breytt 3.11.2008 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2007 | 09:31
Páskaeggjaát framundan
Það fer í taugarnar á mér að heyra auglýsingar eins og er í gangi núna á Bylgjunni fyrir fitubrennsluefnið Hydroxycut. Þar er lagt upp með að þú þurfir ekki að fitna um páskana, því Hydroxycut kemur í veg fyrir að þú fitnir. Hvernig getur eitthvað duft í hylki úr fabrikku í Norður-Ameríku komið í veg fyrir að maður fitni? Slíkar skyndilausnir eru sagðar auka grunnbrennslu líkamans þannig að hann brenni fitu hraðar, en ekki hefur enn verið vísindalega sýnt fram á að þetta gerist í raun og veru.
Auglýsingin er sett upp á blekkjandi hátt þar sem neytandanum er talin trú um að með því að gleypa Hydroxycut dufthylki um páskana geti hann slafrað í sig páskaegg númer 7 frá Nóa án þess að bæta grammi af fitu á mjaðmir og rass. Það er sorglegt hve margir gleypa við svona yfirlýsingum eins og nýju neti, rýkur út og kaupir dollu af Hydroxycut dýrum dómum. Svo situr fólk eftir með sárt ennið og feitari rass, súkkulaði út á kinn og hálftóma Hydroxycut dollu (og hálftóma buddu). Eins leiðinlega og það hljómar þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að við fitnum af páskaeggjaáti en mun ódýrari leið (og sem virkar) til að losna við eggið af rassinum er að hreyfa sig bara meira í næstu viku. Við eigum þess vegna alls ekki að neita okkur um páskaegg um helgina, við sem hreyfum okkur reglulega eigum það þokkalega skilið.
Gleðilega páska!
Fæðubótarefni | Breytt 4.11.2008 kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2007 | 09:02
Offituvandi barna og unglinga
Offita barna og unglinga er vaxandi vandamál hjá vestrænum þjóðum, og Íslendingar eru þar engin undantekning.
Samkvæmt nýlegri rannsókn Brynhildar Briem næringarfræðings eru tæp 20% níu ára skólabarna of þung og 5% of feit. Offita hefur sömu afleiðingar hjá börnum og fullorðnum, eins og hár blóðþrýstingur, hærra kólesteról og blóðfita, hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki, sjúkdómar í beinum og liðum, svefntruflanir og kæfisvefn. En offita barna hefur að auki skaðleg áhrif á beinvöxt þeirra og þroska.
Nú til dags hanga börn inni hjá sér allan liðlangan daginn eftir skóla, með ferköntuð augu límd við skjáinn í tölvuleikjum. Þessi kyrrseta barna á stærstan þátt í þeim vaxandi offituvanda barna og unglinga sem blasir við þjóðinni. Í mínu ungdæmi var farið út og hamast í marga klukkutíma kvöld eftir kvöld, líka á veturna, í eina krónu, yfir, snú-snú, skotbolta og hvað þetta hét allt saman. Það þótti glatað að hanga inni hjá sér enda vildi enginn missa af fjörinu.
Ég hef ekki orðið vör við einn einasta krakka úti að leika í mínu hverfi frá því við fluttum þangað árið 2004. Snorri sá hins vegar nokkra krakka í boltaleik í götunni okkar um daginn og honum varð svo um að hann keyrði næstum því á.
Það er því ekki skrýtið að þeir sem búa í grennd við leikvelli borgarinna séu orðnir svo vanir þögninni sem þar ríkir, að loksins þegar heyrist í ærslafullum börnum að leik að þá hringja þeir á lögregluna.
![]() |
Kvartað yfir háværum unglingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2007 | 09:28
Traustur vinur getur gert kraftaverk
Tók hrikalega tvíhöfða-þríhöfða æfingu í gær með Jóhönnu og vááá hvað ég var búin að sakna hennar. Hún var að æfa fyrir Push and Pull mótið og því gátum við ekki æft saman í næstum 2 mánuði. Það skiptir rosa miklu máli að hafa einhvern með sér til að peppa sig upp. Maður tekur miklu betur á því, það er ekki spurning, Æfingafélagi getur líka spottað mann í síðustu repsunum og þannig getur maður kreist út 1-2 repsum meira en ef maður er einn. Þannig er hægt að lyfta þyngra næst, því skilaboðin til vöðvanna eru meira álag sem þeir reyna að aðlagast með að styrkjast.
Félaginn hvetur mann líka áfram til að taka betur á því, það er þó ekki hvetjandi ef félaginn mætir með svipu og hnúajárn ig kallar neikvæðar athugasemdir eins og "Geturðu ekki meira auminginn þinn". Við Jóhanna hvetjum hvor aðra á jákvæðum nótum, eins og "Koma kelling, þú getur þetta, eina í viðbót, koma svo, meira meira".
Svo líður tíminn miklu hraðar á æfingunni þegar maður getur slúðrað. Það má samt alls ekki gleyma sér í einhverjum kjaftavaðli, til þess eru kaffihús og saumaklúbbar.
Svo er það auðvitað hvetjandi fyrir byrjendur að hafa æfingafélaga , því það eitt að mæta getur verið mjög erfitt á meðan þeir eru að koma líkamsrækt inn í sína daglegu rútinu. Þá er gott að hafa æfingafélaga sem maður getur ekki svikið. Einkaþjálfari gerir auðvitað sama gagn, en æfingafélagi er talsvert ódýrari
Það stefnir í djamm hjá Naglanum og viðhengi í kvöld, enda er okkur boðið í þrítugsafmæli á REX. Þá sjaldan maður lyftir sér upp. Ætlum út að borða á undan, og Naglinn ætlar að taka hraustlega til matar síns og kominn tími til eftir 2 vikna svelti.
Góða helgi gott fólk og gangið hægt inn um gleðinnar dyr.
Naglinn | Breytt 4.11.2008 kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar