27.5.2009 | 09:05
Pumpaðu járnið til að fyrirbyggja krabbamein
Hollur matur og þolþjálfun eru ekki eini mátinn til að fyrirbyggja krabbamein.
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sem framkvæmd var við Karolinska spítalanum í Stokkhólmi sýndu að menn geta minnkað líkur á krabbameini um allt að 40% með því að rífa í járnið af krafti. Tæplega 9000 karlmönnum var fylgt eftir frá 1980 til 2003. Þessar niðurstöður breyta fyrri ráðleggingum sem flestar hafa beinst að þolþjálfun til að minnka líkur á krabbameini: hlaupum, hjólum o.s.frv.
Það er því jafn mikilvægt og gagnlegt að pumpa lóðin, eins og að borða hollt og stunda þolþjálfun til að fyrirbyggja krabbamein.
Meira að segja menn í yfirþyngd sem stunduðu styrktarþjálfun ákaft voru ólíklegri til að fá krabbamein en menn í kjörþyngd sem ekki stunduðu styrktarþjálfun.
Það er ekki nauðsynlegt að æfa eins og vaxtarræktarkappi og djöflast í stærstu lóðunum. Það er nóg að lyfta lóðum, svitna og fá púlsinn upp. a.m.k 2 sinnum í viku, eða í 30 mínútur 5 sinnum í viku,
Rannsóknin bíður birtingar í tímaritinu Cancer Epidemiology, Biomarkers and Prevention.
Lyftingar | Breytt s.d. kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.5.2009 | 13:55
Vaknaðu og lyktaðu af kaffinu
Alltof margir, bæði konur og karlar, leyfa líkamanum að drabbast niður og safna fitu undir hinum ýmsu kringumstæðum. Það getur verið meðganga, prófatörn, skilnaður, atvinnumissir, slys... hvað sem er. Sumir vakna upp við vondan draum og eru búin að bæta á sig 10,20, 30 kg yfir mánuði jafnvel ár.
Eitt sem Naglinn skilur ekki. Svona fitusöfnun krefst stöðugt stærri fatastærða. Kaupir fólk hugsunarlaust næstu stærð fyrir ofan þegar sú "venjulega" passar ekki lengur? Er það ekki kinnhestur í andlitið og lykt af kaffi??
Naglinn skilur heldur ekki hvernig er hægt að hunsa heilsusamlegan lífsstíl og nota ytri aðstæður sem afsökun fyrir að hreyfa sig ekki og borða óhollt. Til dæmis er alltof algengt að fólk í prófatörn sukki í nammi og snakki, og "hafi ekki tíma" til að hreyfa sig. Í gegnum allt háskólanámið, bæði B.A og M.Sc, datt ekki út ein einasta æfing hjá Naglanum né heldur fór eitt einasta óplanaða svindl upp í túlann. Bitnaði það á náminu? Nei, síður en svo. Að hreyfa sig í 1 klst á dag kemur blóðrásinni í gang og þar með eykur blóðflæði til heilans. Eins hressir það fólk við að komast burtu frá námsefninu í smástund og leyfir heilanum að sortéra upplýsingarnar. Þú kemur bara sterkari inn í lærdóminn á eftir.
Alveg er Naglinn viss um að eiginmenn sem fá samúðarbumbu fara með bílinn í skoðun á þessum 9 mánuðum, og að fólk í prófatörn baði sig og tannbursti. En líkaminn er látinn sitja á hakanum.
Það er þrautinni þyngri að ná af sér mikilli fitu, og krefst gríðarlegrar þolinmæði, staðfestu og dugnaðar.
Er ekki gáfulegra að koma í veg fyrir slíka ferð með því að setja líkamann alltaf í forgang?
Verðandi feður fá samúðarbumbu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2009 | 10:16
Sjálfsábyrgð...ekki hjá tryggingafélaginu
Öflugasta hvatningin er sjálfsábyrgð þegar kemur að þvi´að ná markmiðum sínum.
Ábyrgðarkennd er risastór þáttur í allri velgengni, hvort sem það er í viðskiptum, námi,vinnu eða þjálfun. Sjálfsábyrgð byrjar hjá okkur sjálfum og er mjög einföld. Þú setur þér markmið, setur upp plan, skuldbindur þig til að fara eftir því ogfylgist svo með árangrinum.
Þú getur verið ábyrg(ur) gagnvartsjálfum þér og öðrum.
1. skrifleg markmið 

2. Vigta sjálfa(n)þig
3. Mæla samsetningu líkamans

4. Mæla ummál líkamans

5. Taka ljósmyndi 

6.Búa til matseðil eða fylgjast með mataræðinu í matardagbók
7. Búa til æfingaprógramm og fylgjast með árangrinum í dagbók
Einfaldlega allt sem þú vilt bæta skaltu fylgjast með: Næring, þjálfun, lífsstíll (tími og gæði svefns, reykingar,áfengisneysla o.s.frv).
Það mun enginn koma og redda málunum fyrir þig.
Breytingarnar byrja hjá okkur sjálfum. Þú þarft að skuldbinda þig og það er stór ákvörðun.
En um leið og þú hefur viðurkennt sjálfsábyrgð þína þá geturðu tvöfaldað hvatninguna með því að vera ábyrgur gagnvart einhverjum öðrum. Til dæmis með að sýna árangur vikulega eða mánaðarlega.
Það getur verið hver sem er, systkini,foreldri, vinur/vinkona, vinnufélagi o.s.frv.
Þú getur líka ráðið þér fagmann í verkið, þjálfara eða leiðbeinanda. Af hverju virkar þessi aðferð? Það er tilorðatiltæki í viðskiptum sem segir: Frammistaða eykst þegar frammistaða er mæld.
Í viðskiptum eru margvíslegar aðferðir notaðar til að mæla frammistöðu starfsmanna: dagbækur, skýrslur, tékklistaro.fl. Þessar aðferðir virka líka í þjálfun og frammistaðan eykst þegar fylgst er með henni.
Hugarfar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.5.2009 | 05:17
Svarti-dauði??
Óhófleg kóladrykkja dregur úr vöðvastyrk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2009 | 17:43
Partý hjá Karíusi og Baktusi og fitufrumunum
* Vissir þú að sykurneysla á mann á Íslandi er komin upp í eitt kíló á viku?
* Vissir þú að með viðbættum sykri í skólajógúrt, skólaskyri, rjómaskyri, ávaxtajógúrt og þykkmjólk fer heildarsykurmagn vörunnar í 10-14%?
* Vissir þú að venjuleg mjólk, ab-mjólk, óblandað skyr og súrmjólk innihalda aðeins um 4% mjólkursykur, allan frá náttúrunnar hendi?
* Vissir þú að eina morgunkornið sem ekki inniheldur viðbættan sykur eru óblandaðar hafraflögur?
* Cheerios er þó aðeins 3% sykur, Corn Flakes 5%, All Bran 18%, Múslí 22%, Frosted Cheerios inniheldur 40% sykur og Coca Puffs 47%. Þessar vörur eru þó auðugar af ýmsum bætiefnum.
* Vissir þú að gosdrykkjaneysla á Íslandi hefur rúmlega þrefaldast á þremur áratugum og er nú komin í meira en 130 lítra á mann?
* Vissir þú að þurrefni í gosdrykkjum er meira en 99% sykur?
* Vissir þú að algengt magn viðbætts sykurs í kexi er 17-19% og í kökum 21-28%?
* Vissir þú að sykri er bætt í nánast allan pakka-, dósa- og glasamat á Íslandi?
* Vissir þú að ennþá er ekki skylt að tilgreina viðbættan sykur á umbúðum íslenskra matvæla?
* Vissir þú að enginn aðili á Íslandi telur sig hafa það hlutverk að mæla hvort innihaldslýsingar á íslenskum matvælum séu sannleikanum samkvæmar?
* Vissir þú að nýjar rannsóknir í Bandaríkjunum benda til svipaðs boðefnarugls í heila við neyslu sykurs og við neyslu fíkniefna og borð við áfengi og heróín?
Mataræði | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.5.2009 | 08:56
C-vítamín
C-vítamín gerir meira en að koma í veg fyrir kvef. Það er hjálparefni í ýmsum ferlum í líkamanum, t.d í myndun kollagens í bandvef, auk þess að auka upptöku á járni úr fæðunni. Vægur skortur af C-vítamíni kemur fram sem þreyta, minni mótstaða gegn sýkingum og blóðleysi vegna þess að upptaka á járni er léleg.
C-vítamín er öflugt andoxunarefni og berst á móti sindurefnum í líkamanum. Sindurefni (free radicals) geta valdið lifandi frumum skaða en C-vítamín verndar frumur líkamans, blóð og aðra vessa likamans frá skemmdum af völdum sindurefna. C-vítamíns gegnir einnig mikilvægu hlutverki í vöðvauppbyggingu og er mikilvægt bætiefni fyrir fólk sem æfir af krafti.. Það kemur í veg fyrir að nítur oxíð sé eyðilagt af sindurefnum sem eykur blóðflæði til vöðva.
C-vítamín heldur testósterón magni í líkamanum í hámarki með því að minnka hlutfall kortisóls á móti testósteróni. Rannsókn í Journal of Strength and Conditioning Research sýndi að inntaka á 1000 mg af C-vítamíni á dag minnkar losun kortisóls í líkamanum, en eins og við vitum er kortisól vondi kallinn sem eyðileggur vöðvana okkar. Þannig geta vöðvarnir stækkað og við getum lyft meiru.
Þar sem líkaminn ferlar C-vítamín mjög hratt þá mæla margir sérfræðingar með að taka 500 mg af C-vítamíni 2x á dag, sérstaklega mikilvægt er að taka C-vítamín eftir æfingu.
Það er meira af C-vítamíni í papriku í einni stórri papriku eru 209 mg C-vítamín á móti 98 mg í einni stórri appelsínu.
9.5.2009 | 05:13
Loksins jákvæð frétt frá Íslandi
Þessum niðurstöðum ber að fagna. Landinn hefur sannarlega vaknað til vitundar undanfrain ár um mikilvægi hreyfingar og hollra lifnaðarhátta. Ástundun reglulegrar hreyfingar og hollt mataræði gefur ekki eingöngu bætt útlit og líðan á sál og líkama. Með því að hreyfa okkur reglulega og hugsa um hvað við setjum ofan í okkur erum við einnig að fyrirbyggja sjúkdóma og þannig lengjum við lífið og bætum lífsgæðin í framtíðinni.
Það verður ekki metið til fjár....þó að það sé talað um í fréttinni að dregið hafi úr reikningum
Dánartíðni vegna hjartasjúkdóma hefur minnkað um 80% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2009 | 11:45
Þú veist að þú ert að taka vel á því þegar....
Þú sannfærir sjálfa(n) þig að sleppa siðasta repsi/setti/spretti en klárar samt, annað eru helgispjöll
Þú hjólar heim eftir massífa fótaæfingu og börn og gamalmenni þeysast fram hjá þér
Það eru virkileg átök að blása hár og bursta tennur eftir að hafa lyft efri part
Það er á mörkunum að þú getir labbað niður stigann í búningsklefann eftir fótaæfingu
Daginn eftir fótaæfingu kjagarðu eins og fanginn í sturtunni
Þú lætur þig síga hææægt á klósettsetuna daginn eftir fótaæfingu - þú notar jafnvel fatlaða-klósettið
Þú rymur og stynur eins og berklasjúklingur í síðustu repsunum
Þú þarft að fara á the happy place í huganum til að geta klárað settið
Börn fara að gráta þegar þau sjá afskræmt andlit þitt í síðustu repsunum
Þú heldur áfram að svitna þó að þú sért búin(n) í sturtu og komin(n) í fötin
Andlitið er ekki rautt heldur purpuralitað eftir æfingu
Súrefnisgríma kemur sterklega til greina eftir sprettæfingu
Þú veltir því fyrir þér í miðjum spretti hvort einhver hafi látið lífið við að gera HIIT
5.5.2009 | 09:11
Gnístran tanna
Gnístran tanna' er tímabil sem verður í veginum í leit að líkamlegum umbreytingum þar sem þú þarft bara að bíta á jaxlinn, hætta að væla og halda áfram.
Þetta er oftast tímabilið þegar byrjenda áhrifin hafa dvínað, þar sem breytingarnar eru mjög hraðar, og til lokaafurðarinnar. Breytingar eru að eiga sér stað, en þú sérð þær ekki frá einni viku til annarrar.
Hugarfarslega er Gnístran tanna' tímabilið þegar nýja prógrammið og mataræðið er ekki lengur spennandi, allt er komið upp í rútínu, jafnvel bara leiðinlegt. Þú einfaldlega ferð eftir planinu dag eftir dag eins og vélmenni.
En það sem gerist undir lok Gnístran tanna' tímabilsins er að þú kíkir á "fyrir" myndirnar og áttar þig á að meiriháttar breytingar hafa átt sér stað. Annað fólk byrjar að taka eftir breytingunum og þú færð hrós hingað og þangað. Svoleiðis jákvæðar athugasemdir geta kveikt aftur neistann sem hleypir meiri krafti í æfingarnar og hörku í mataræðið. Afleiðingarnar eru meiri árangur.
Undir lok Gnístran tanna' tímabilsins er einhver áfangi eða verðlaun, yfirleitt í formi útlitslegra breytinga, aukins styrks, þols o.s.frv.
En Gnístran tanna' kemur alltaf fyrst.
Vandamálið er, að flestir eru ekki tilbúnir í svona fórnir. Þeir byrja ekki einu sinni á Gnístran tanna' hvað þá klára það tímabil. Og það er ástæðan fyrir því af hverju margir ná ekki árangri. Það er alltof stutt í uppgjöfina.
Hugarfar | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2009 | 10:02
Mind-fuck
Það er til hugarástand sem Naglinn kallar "mind-fuck". Það er þegar lítill púki sest á öxlinaog hvíslar syndsamlegum hugsunum um mat í eyrað á þér, hvort þig langi nú ekki í ís í góða veðrinu, eina með öllu eftir sundið, pizzu í þynnkunni o.s.frv. Hvað með það þó það sé bara þriðjudagur og þú svindlaðir um helgina.
Þáhefst alls kyns hugarleikfimi sem felst í sjálfsblekkingum að þetta sé nú ílagi svona einu sinni þó það sé ekki nammidagur, ég verð bara extra dugleg(ur)í ræktinni í vikunni, ég á þetta nú skilið....
Naglinn er mannlegt kvikindi einsog hinir, og hefur alveg glímt við sitt "mind-fuck" þegar viðbjóðurinn á kjúlla og spínati nær hámarki. En Naglinn er mjög "anal" og lítur á það sem alvarlegan glæp gegn mannkyninu að svindla þegar það er ekki leyfilegt.
Þannig að þegar slíkar saurugar hugsanir sækja á gráa efnið, þá fer Naglinn í vopnabúr sitt af mótrökum og baráttan hefst.
Naglinn er með ofátsgræðgisröskun og veit nákvæmlega hvað gerist þegar bragðlaukarnir fá sýnishorn af sukki, allar hömlur fjúka út íveður og vind. Naglinn veit líka nákvæmlega hverjar líkamlegu og andlegu afleiðingarnar eru af óskipulögðu svindli. Líðanin er ömurleg, feitan og ljótan á lokastigi, samviskubit á stærð við steppur Síberíu, bumba og þrútnir þjóhnappar þrýstast út í fötin sem eru öll mun þrengri fyrir vikið , þrútnir fingur, tær og smettið eins og tungl í fyllingu.
Naglinn veit líka betur en svo að einhver 1-2brennsluæfingar í vikunni geti unnið á móti sukki og svínaríi. Mataræðið er það sem skiptir máli til að losna viðspekið.
Naglinn þarf líka að standa skil á mælingum hálfsmánaðarlega, alveg eins og sínir eigin kúnnar. Næsta mæling er þannig alltaf í huga Naglans, og metnaðurinn til að stíga skref áfram í hvert skipti, en ekki afturábak né standa í stað, sigrar allan gómsætan mat undir sólinni.
Með allar þessar hugsanir að vopni sigrar Naglinn sitt eigið mind-fuck og púkinn á öxlinni lyppast örendur niður.
Nothing tastes as good as looking good does.... og þegar árangurinn kemur í ljós verður maður svo stoltur af eigin staðfestu og dugnaði sem til lengri tíma litið styrkir góðar matarvenjur í sessi.
Hugarfar | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550736
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar