Með hnút í maga

Nú eru bara 24 tímar í Þrekmeistaramót og kvíðahnúturinn í mallanum stækkar með hverri mínútunni og er á leiðinni alveg upp í kok. 

Mér líður eins og í gamla daga þegar ég var að fara í erfitt próf í skólanum, alveg að farast úr stressi og búin að ímynda mér að allt hið versta geti gerst.  Að ég fótbrotni á brettinu, gubbi í róðrinum, falli í ómegin í uppstiginu, ég verði of lengi og þurfi að víkja úr brautinni með skömm.  Ég var miklu afslappaðri fyrir mótið í haust, en þá var ég líka að keppa í fyrsta skipti svo ég gerði í sjálfu sér engar kröfur til sjálfrar mín.  Þá vildi bara taka þátt og sjá hvernig mér gengi.  En nú vil ég gera betur en síðast, og ég verð svo svekkt út í sjálfa mig ef ég næ ekki því takmarki, og þá er maður bæði sökudólgur og fórnarlamb á sama tíma sem er ekki gott andlegt ástand Frown.  En á milli niðurfallskastanna reyni ég að hugsa á jákvæðum nótum og minni sjálfa mig á að aðalatriðið er að njóta þess að vera nógu hraust til að geta tekið þátt í svona keppni.  Því það eru auðvitað forréttindi að geta hreyft sig, og við sem göngum á báðum fótum jafn heilum pælum aldrei í því að fullt af fólki hefur ekki einu sinni þann kost að fara í ræktina og púla sökum fötlunar eða veikinda.  Þeir sem hreyfa sig aldrei og eru 100% heilbrigðir á sál og líkama ættu aðeins að pæla í þessu!! 

En á morgun ætla ég bara að taka Naglann á þetta alveg brjáluð Devil og gera mitt besta og aðeins betur ef það er það sem þarf....

 Góða helgi gott fólk!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

gangi þér vel!!! þú massar þetta naglinn þinn!

Lovísa (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 13:44

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir peppið Lou.... ég mæti til leiks í brjáluðum ham!!

Ragnhildur Þórðardóttir, 4.5.2007 kl. 13:59

3 identicon

Þú átt eftir að standa þig eins og hetja...gangi þér vel

Ingunn (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 14:12

4 identicon

Nákvæmlega... það eru ekki allir svo heppnir að GETA hreyft sig svona og keppt í íþróttum. Hafðu bara rosalega gaman af þessu og gangi þér sem allra, allra best  Hlakka til að frétta af þér.

Takk fyrir pistil gærdagsins... þetta er svo mikið satt og rétt hjá þér. Ég fékk sönnun fyrir þessu beint í æð núna um mánaðarmótin þegar ég fór í mína mánaðarlegu vigtun og mælingu. 1 kg á farið á heilum mánuði en 13 sm af ummálinu!!  Vigtin er alveg stórhættuleg svona ein og sér og gefur MJÖG villandi upplýsingar. Fínt samt að hafa hana með hinum mælingunum því þá sér maður betur hvað er að gerast.

Baráttukveðjur fyrir morgundaginn og góða ferð norður.

Óla Maja (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 17:12

5 identicon

Nákvæmlega... það eru ekki allir svo heppnir að GETA hreyft sig svona og keppt í íþróttum. Hafðu bara rosalega gaman af þessu og gangi þér sem allra, allra best  Hlakka til að frétta af þér.

Takk fyrir pistil gærdagsins... þetta er svo mikið satt og rétt hjá þér. Ég fékk sönnun fyrir þessu beint í æð núna um mánaðarmótin þegar ég fór í mína mánaðarlegu vigtun og mælingu. 1 kg á farið á heilum mánuði en 13 sm af ummálinu!!  Vigtin er alveg stórhættuleg svona ein og sér og gefur MJÖG villandi upplýsingar. Fínt samt að hafa hana með hinum mælingunum því þá sér maður betur hvað er að gerast.

Baráttukveðjur fyrir morgundaginn og góða ferð norður.

Óla Maja (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 19:23

6 identicon

Ég sá að þú bættir tímann þinn frá í fyrra  Til hamingju með það  Ég fór til að horfa á keppnina.. hef aldrei horft á hana áður og hafði mjög gaman af. Það leynir sér ekkert að þetta er mikil þrekraun og greinilega ýmislegt sem þarf að hafa í huga annað en bara hamast eins og eins og maður getur. Mér finnst þið bara hetjur sem komist í gegnum brautina. Hip, hip, húrra 

Óla Maja (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 11:59

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir það Óla Maja.  Manni finnst maður líka algjör hetja sjálfum fyrstu mínúturnar eftir keppnina þegar adrenalínið er í hámarki og hjartað á fullu.

Varstu á keppninni?  Býrðu fyrir norðan?  Það hefði verið gaman að heilsa upp á þig, en ég veit náttúrulega ekki hvernig þú lítur út .

Ragnhildur Þórðardóttir, 7.5.2007 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 549222

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband