Enjoy what you do and do what you enjoy

Dietpic

Sálfræðingar hafa lengi rannsakað hlutverk viðhorfa og skoðana sem forspá um ástundun reglulegrar hreyfingar.

Eftirfararandi skoðanir og viðhorf hafa komið fram í langflestum rannsóknum:

Félagslegur ávinningur hreyfingar: Sú skoðun að hreyfing sé ánægjuleg og þau félagsleg tengsl sem henni fylgja eru talin mikilvæg.  Ein rannsókn skoðaði viðhorf skokkara og þeirra sem ekki stunduðu skokk.  Þeir sem stunduðu ekki skokk sögðu að slík iðja krefðist of mikils sjálfsaga, og trúðu ekki á jákvæð áhrif og ánægju skokks.

Gildi eigin heilsu: Margir æfa af öðrum ástæðum en sér til heilsubótar, til dæmis fyrir ákveðna íþrótt, fitness, maraþon, kraftlyftingar o.fl.  En sú skoðun að heilsa og hreysti séu mikilvæg spilar samt ákveðið hlutverk í forspá um hvort viðkomandi stundi hreyfingu eða ekki.

Ávinningur hreyfingar: Þeir sem hreyfa sig reglubundið skora vanalega hærra á skölum sem mæla gildi hreyfingar fyrir heilsu, ánægju af hreyfingu og skora lægra á skölum sem mæla óþægindi og óánægju með ástundun hreyfingar.

Hindranir fyrir ástundun hreyfingar: Það eru ýmsir þættir sem koma í veg fyrir að fólk byrji að stunda reglubundna hreyfingu.  Þar eru mest áberandi þær skoðanir að hreyfing sé tímafrek, of langt í burtu, of dýr og óþægileg upplifun af hreyfingu.

 

Það vekur vissulega athygli að þrátt fyrir almenna vitneskju um að regluleg hreyfing skili sér í betri heilsu þá virðist sú vitneskja ekki skipta öllu máli í forspá um ástundun hreyfingar.  Ánægjuleg upplifun af hreyfingu er mun sterkari þáttur í að spá fyrir um hvort einstaklingur stundi hana reglulega.  Óþægileg upplifun og óánægja er algengasta ástæða fyrir uppgjöf.

 

Skilaboðin eru því skýr: Finnið ykkur hreyfingu sem ykkur þykir skemmtileg!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

AMEN  Svo verður maður að passa sig á því að gefa hlutunum stundum séns.. og stundum að gefa þeim annan, jafnvel þriðja sénsinn. Fyrst þegar ég byrjaði að stunda ræktina fannst mér það rosalega gaman. Svo datt allt niður hjá mér þegar ég fór til útlanda og næst þegar ég byrjaði í ræktinni þá bara fann ég mig alls ekki þar. Núna er ég aftur á móti algjörlega húkkt og hef aldrei notið þess eins vel að púla og pumpa

Annars langar mig að koma með eina spurningu. Ég hef lent í því nokkrum sinnum þegar ég er í þolþjálfun/brennslu að ég kólna frekar snögglega undir lok æfingarinnar. Ég er ekki búin að hlaupa eða hjóla neitt rosalega lengi (stundum 18 mín, stundum 24.. eða 30) og ég svitna duglega.. en svo gerist þetta.. eins og kaldur hrollur læðist um mig og a.m.k. tvisvar hef ég klætt mig í aukapeysu strax eftir æfinguna. Heldur þú að þetta sé eitthvað sem ég á að hafa áhyggjur af?

Óla Maja (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 22:14

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl og blessuð mín kæra!

Ég hef sjálf ekki lent í því að kólna skyndilega á meðan æfingu stendur en mér er oft rosalega kalt í nokkra klukkutíma á morgnana eftir brennslu og morgunverð. 

Ég fór á stúfana og athugaði málið og þetta svar er tekið af vísindavefnum:

Við aukna hreyfingu vöðvanna myndast mikill varmi og getur líkamshiti hækkað verulega við langvarandi áreynslu. Þá getur hitastig í innri líffærum líkamans, svokallaður kjarnhiti, hækkað upp í allt að 40-42°C . Líkaminn losar sig jafnframt við mikinn varma út í andrúmslofið því annars myndi hitastigið hækka enn frekar. Hærra hitastig en 40-42°C getur truflað eðlilega líkamsstarfsemi og skemmt ýmis nauðsynleg ensím.Ef líkamshitinn lækkar í okkur er ástæðan yfirleitt annað hvort of lítil varmaframleiðsla (of lítið um efnahvörf) eða of mikið varmatap til umhverfisins. Líkaminn getur reynt að koma í veg fyrir hitalækkunina með því að: 1.       Minnka blóðflæði til húðar og jafnvel útlima (þess vegna verður húðin svöl og okkur kólnar á höndum og fótum). 2.       Minnka svitamyndun þannig að engin uppgufun verði. 3.       Auka einangrun með því að reisa hárin á líkamanum; við fáum gæsahúð. Þetta gegnir þó litlu hlutverki hjá manninum en aftur á móti miklu hlutverki hjá ýmsum dýrum sem hafa feld.

4.       Auka einangrun með því að fara í föt. Aðaleinangrunin felst í loftmagni fatanna, en það loft þarf þó að vera kyrrstætt og því má ekki blása í gegnum fötin.

   

Ragnhildur Þórðardóttir, 5.9.2007 kl. 08:52

3 identicon

OK.. þetta er þá greinilega of mikið varmatap! þarf bara að klæða mig betur  Annars er ég nú ekkert voðalega léttklædd við þetta. Ég skildi bara ekkert í þessu því ég er á fullri ferð í æfingunum þegar þetta gerist.. ekki eins og ég hafi hægt á mér því ég hef líka alveg kynnst því að kólna svona þegar ég er hætt að æfa...t.d. í teygjum.

En þúsund þakkir fyrir fróðleikinn.... og að hafa fyrir því að leita að þessu fyrir mig

Óla Maja (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 549196

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband