Hollt eða óhollt? Þitt er valið!

Dyggur lesandi spurði hvað ég gerði í óþægilegum aðstæðum þar sem matur á “bannlista” er í boði. Allir lenda í því reglulega að vinir og vandamenn bjóða manni út að borða á pizzastaði eða í mat heima hjá sér og þegar maður er að passa mataræðið upp á punkt og prik þá þarf maður bara að vera harður bæði við sjálfa sig og gagnvart öðru fólki. Það má líkja þessu saman við ef einhver myndi biðja þig að taka þátt í sadó-masó athöfn með sér. Ef maður er ekki fyrir svoleiðis samkomur þá er enginn að ætlast til þess að maður strippi sig klæðum og hoppi í leðurgalla og sveifli svipu. Sama gildir um matarvenjur, þú átt ekki að láta annað folk stjórna því hvað fer ofan í þig, ef þú vilt ekki borða pizzur eða hamborgara þá einfaldlega læturðu það í ljós við viðkomandi. Þegar mér er boðið í mat þá spyr ég yfirleitt hvað sé í matinn og ef það samræmist ekki mínum matarvenjum þá kem ég einfaldlega með mat með mér. Flestir sem mig þekkja vita að ég læt ekki hvað sem er ofan í mig og móðgast því (vonandi) ekki þegar ég dreg upp Tupperware boxið. Eins með saumaklúbba, það er engin ástæða til að sleppa því að mæta heldur er hægt að borða bara sinn kvöldmat áður en farið er og sleppa kruðeríinu eða ef niðurskorið grænmeti eða ávextir eru í boði má narta í það.
Ef vinur eða vinkona biður mig um að koma út að borða á sveitta hamborgarabúllu, sem enginn gerir lengur reyndar, þá segi ég bara einfaldlega að ég borða ekki slíkan mat og hvort viðkomandi sé ekki til í að koma frekar á Vegamót eða eitthvert annað þar sem ég geti pantað hollustu.
Þetta er allt spurning um val, hvað velurðu að borða og hvað velurðu að borða óhollt oft í viku, og þetta val er algjörlega undir manni sjálfum komið.
Maður á ekki að þóknast öðrum með að gúffa í sig einhverjum viðbjóði og líða illa líkamlega og andlega eftir á.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert snillingur ! :) Virkilega skemmtilegt blogg !!

Sunna Hlín (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 09:46

2 identicon

Heyr, heyr, þú hefur svo sannarlega rétt fyrir þér. Maður verður nefnilega að hafa hugfast hvað maður sjálfur vill og standa með sjálfum sér. Alltaf.

Knús og kram fyrir morgundaginn. Vona að allt gangi vel. :)

ingunn (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 15:12

3 identicon

Hárrétt! Stóra málið er að maður þarf að kveikja á því að maður er jú að borða fyrir sjálfan sig og engan annan. Alltof lengi lét ég aðra hafa mikil áhrif á mig hvað þetta varðar og gerði afskaplega máttlausar tilraunir til að taka mig á varðandi mataræði og hreyfingu. Svo fékk ég "sjálfselskukast" fyrir rúmum 2 árum og tók bara fulla ábyrgð á því að það væri ÉG sem stjórnaði mínu lífi og enginn annar. Í dag eru allir í kringum mig orðnir vanir því að ég borða ekki hvað sem er og mér er ekki boðið upp á neitt sukk lengur. Ef mér er boðið í mat þá er fólk farið að spyrja í leiðinni hvað ég megi og hvað ég megi alls ekki. Í leiðinni má líka nefna að mér finnst í dag alveg fáránlegt þegar fólk spyr mig svona því í mínum huga er ekkert sem ég EKKI MÁ.. en ég kýs annað en ég gerði áður.

Flottar tillögur hjá þér.. það er um að gera að stinga upp á stöðum þar sem allir geta fengið það sem þeir vilja, sukk eða hollustu  Maður þarf fyrst og fremst að passa sig á því að það þarf ekki að hafa áhrif á vinskapinn þó maður kjósi að borða annað en vinirnir.

Óla Maja (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 549214

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband