Mökk pirraður Nagli

Stundirnar í ræktinni eru uppáhaldsstundir Naglans, það jafnast ekkert á við tilfinninguna að rífa í járnið, massa stálið, berjast, hamast, mása og blása.

En annað var uppi á teningnum á æfingu í gær.  Á dagskránni var að massa bakið, víkka latsana og þykkja herðablöðin.  Eftir upphitun byrjar Naglinn á upphífingum, og greinilegt að morgunbrennslurnar og kaloríuköttið er byrjað að segja til sín á æfingum, því hífurnar gengu ekki eins vel og vanalega, og það fór í skapið á Naglanum  Þessi pirringur magnaðist eftir því sem leið á æfinguna, og allt fór í taugarnar á mér, þó sérstaklega mín eigin risastóra spegilmynd. 

Einhverjir aumingja Danir urðu fyrir því óláni að vera á bekk við hliðina á Naglanum á meðan ég var að taka róður með lóð.  Þeir voru að spjalla saman á sínu hrognamáli og hvetja hvorn annan áfram: "Je, kom so, hallo, hallo, kom so...."  Þessi hvatning og þeir yfirhöfuð fóru í gegnum merg og bein á pirruðum Naglanum og ekkert annað í stöðunni en að þyngja vel og fá útrás í gegnum lóðin.  Enda djöflaðist Naglinn svo svakalega að eftir settið sá ég að Danakvikindin voru allir að glápa á aðfarir hlussunnar við hliðina.

Hleypti svo restinni af skapvonskunni út í brennslu og fór bara nokkuð sátt við lífið út úr Laugum.

 

Svona er maður klikkaður Blush.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Audrey

Hehe, alvöru skap hér á ferð

En af hverju ertu að auka brennsluna núna?  Ef ég má spyrja.

Audrey, 7.5.2008 kl. 14:07

2 identicon

Hehe passa mig á því að vera ekki að taka upphífingar núna, er eitthvað svo þung á mér þessar vikurnar og vil ekki vita hvað ég er ógeðslega léleg

Jana (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 15:34

3 Smámynd: M

Þyrfti að elta þig um salinn, var eins og villuráfandi hæna í tækjunum þar sem Body shape tímarnir eru farnir í sumarfrí.  Er alltof lin við sjálfa mig

M, 7.5.2008 kl. 18:10

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Auður! Kellingin er í míní kötti núna í nokkrar vikur, fékk grænt ljós frá Konna og Guðrúnu Hólmfríði að það væri í lagi svona á miðju tímabili.  Verð að ná mér aðeins niður, spikið er komið út yfir öll velsæmismörk

Jana!  Ég hefði betur sleppt þeim enda ógeðslega þung og léleg í þeim... ekki gott fyrir skapið í minni að vera ekki 100% .

M! Þér er velkomið að elta mig um salinn hvenær sem er mín kæra .  Ég er að lyfta um 4 leytið á daginn. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 8.5.2008 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband