Paris, je t'aime

Naglinn og hösbandið ætla að bregða undir sig betri fætinum og skella sér í helgarferð til London og Parísar frá og með morgundeginum.

Ekki er ástæða til að fara út af matarplaninu í fríinu, enda aðeins 11 og hálf vika í mót og mikilvægt að halda á spöðunum.
Þess vegna er búið að pakka vog til að vigta skammtana, Tupperware dollurnar eru tilbúnar fyrir kræsingar, prótínduftið komið í minni pakkningar, bætiefnin eru komin í töfluboxið og síðast en ekki síst fær blandaragreyið auðvitað að fljóta með sem endranær, enda vafalaust leitun á víðförlari blandara.
Hótelherbergið í París er með eldhúsi, enda tók Naglinn ekki annað í mál en að hafa aðstöðu til að preppa hafragrautinn og eggjahvíturnar.

Ekki er heldur ástæða til að sleppa æfingum í fríi, frekar en að sleppa tannburstanum.
Því er búið að pakka hlaupaskóm, púlsmæli, iPod, æfingafatnaði. Til þess að ná brennslu fyrir flug verður ræs hjá Naglanum kl. 4:30 í fyrramálið og sprett úr spori um austurborgina áður en brunað verður út í Leifsstöð.

Ef Naglinn nær sambandi við veraldarvefinn á ferðalagi sínu verður að sjálfsögðu hent inn eins og einni færslu.

Þangað til óskar Naglinn öllum velfarnaðar..... og takið nú á því!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert svo MÖGNUÐ stelpa! ;)  Góða skemmtun úti !!!

Nanna (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 19:21

2 Smámynd: M

Eigið yndislega tíma saman í útlöndum xxxx

M, 2.9.2008 kl. 19:29

3 identicon

Váááá hvað þú ert dugleg, dáist að þér

 Góða skemmtun í París...

Soffía (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 22:12

4 identicon

Góða ferð, ég verð nu að segja það að það er alltaf uppörvandi að lesa bloggið þitt.

Lokka (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 01:33

5 identicon

Ji, hvað þú ert dugleg!!! Annars segi ég bara góða ferð og góða skemmtun í fríinu  

Mína (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 10:50

6 identicon

Góða ferð :)

Elsa (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 12:35

7 identicon

Þú ert ekkert smá dugleg stelpa!!!

Góða ferð út...

Hrund (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 13:53

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æðislegt góða skemmtun og engin mun svíkjast um, allavega ekki ég.
Njótið helgarinnar og elskið hvort annað.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.9.2008 kl. 16:32

9 identicon

Góða ferð

Soffía (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 18:56

10 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Njóttu.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 3.9.2008 kl. 23:26

11 Smámynd: Gúrúinn

Bon voyage

Gúrúinn, 4.9.2008 kl. 13:17

12 Smámynd: Audrey

Góða ferð :)

Audrey, 4.9.2008 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 549221

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband