Overload lögmálið

Lögmálið um "overload" er grunnur að öllum árangri í þjálfun. 


Þar segir að skilyrðið fyrir aðlögun að þjálfun sé að líkaminn þurfi áreiti sem er yfir eðlilegum mörkum.  Líkaminn aðlagast þessu aukna áreiti.  Þegar kemur að því að verða sterkari, þarftu að láta líkamann finna fyrir meira áreiti en hann er vanur til að þvinga hann til að aðlagast.  Í grundvallaratriðum verður öll aðlögun að þjálfun á þennan hátt. 

Það eru til ýmsar leiðir sem auka álag og áreiti fyrir líkamann. 
Þær tengjast samt allar þremur megin "triggerum" fyrir vöðvavöxt:  Lóðaþyngd (mechanical load), þéttni (density) og tími undir álagi (time under tension).

Í fyrsta lagi getur þú aukið kraftinn á æfingunni.  Einfaldlega lyft meiri þyngd, eða lyfta sömu þyngd hraðar.  Með því að nota sprengikraft í pósitífa hluta lyftunnar náum við að virkja stóru og kraftmiklu hreyfieiningarnar sem hafa háan þröskuld þ. e Type II vöðvaþræðina.

Í öðru lagi, geturðu stytt tímann sem  æfingin tekur.  Þú ert að gera jafn mikla vinnu (eða jafnvel meiri) á styttri tíma sem eykur þéttnina í þjálfuninni. 

Að lokum, geturðu aukið heildarvinnuálagið eða "volume" á æfingunni, sem hefur jákvæð áhrif á tíma undir álagi fyrir vöðvana. 

Með því að hunsa þessi lögmál algjörlega endum við á að gera það sama daginn inn og út, og það nokkurn veginn tryggir engan árangur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

AHA, þessa vitneskju mun ég nýta mér!

p.s. hittum systrabörnin þín og systur í pönnsukaffi í gær. Lillarnir eru í einu orði sagt, unaðsleg! Dó úr hlátri yfir grallaralátunum í Joshua sem er klárari en öll fjögurra ára börn, sem ég hef hitt, til samans. Sofia Lilja vaggaði um svæðið með krullurnar og var sætari en allt sætt. Hefði getað étið hana!!

Sunna (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 09:51

2 identicon

awright, og nú verða það bara harðsperrur út í hið óendanlega. Ætla að láta reyna á þetta næstu vikur. Eða má ekki annars gera þetta á öllum lyftingaræfingum, þarf að taka einhverja pásu frá þessu af og til?

Palli (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 10:34

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sunna!  Joshua er ótrúlega vel gefið barn og þau systkinin eru bara krúttlegust, það er sko alveg hægt að borða Sofiu Lilju og bumbuna hennar með skeið.

Palli!  Þetta eru lögmál sem ætti að hafa alltaf í hávegum , en en eins og með allt annað þá venst líkaminn ótrúlega fljótt.  Prófaðu fyrst að auka sprengikraftinn á æfingum.  Svo geturðu bætt við volume, eða stytt tímann.  Það er betra að nota færri aðferðir í einu, og grípa frekar til þeirra þegar þú staðnar.  Of mikið volume í langan tíma stuðlar bara að niðurbroti.

Ragnhildur Þórðardóttir, 22.9.2008 kl. 10:51

4 identicon

"Svo geturðu bætt við volume" - hvernig gerir maður það ? :)

Snjólaug (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 12:47

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Volume er eins og segir í textanum: heildarvinnuálag.  Hversu margar æfingar þú gerir, hversu mörg sett og reps. 
Því fleiri æfingar, sett og reps, því meira volume

Ragnhildur Þórðardóttir, 22.9.2008 kl. 13:39

6 identicon

Er óráðlegt að æfa einn vöðvahóp tvisvar í viku, og svo annan vöðvahóp tvisvar í næstu viku og þannig koll af kolli alla vövahópana?

Palli (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 08:29

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Palli!  Það er í góðu lagi að æfa einn vöðvahóp tvisvar í viku, ég geri það fyrir alla vöðvahópa.  Passaðu bara að heildarvinnumagnið (volume) sé ekki of mikið, ekki taka tvær "full-blown" æfingar í viku á vöðvahóp.  Þeir þurfa að jafna sig að fullu.  Betra að minnka volume á hvorri æfingu en að heildarvinnan í lok vikunnar sé svipað og eftir eina massífa æfingu. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.9.2008 kl. 10:50

8 identicon

Okey, takk kærlega

Palli (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 549159

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband