Út um græna grundu hleypur Naglinn

Naglinn massaði fyrsta útihlaup sumarsins í morgun, enda ekkert annað í stöðunni við slíkar kjöraðstæður... blankalogn, næstum 10 stiga hiti og sólin að brjótast fram úr skýjunum. Það jafnast ekkert á við hlaup eldsnemma morguns, aleinn, ekki hræða á ferli nema einstaka blaðberi og leigubíll, lyktin af nýslegnu grasi fyllir vitin og Led Zepp og Voodoo people á blasti í eyrunum, Það voru nett viðbrigði að fara af færibandinu í Laugum og út á malbikið. Það er nefnilega mun erfiðara að puða undir berum himni, maður er að vinna með meira súrefni og meiri mótspyrna í malbikinu. Reyndi að taka sem flestar brekkur til að láta afturendann vinna yfirvinnu (ekki veitir honum af), og henti nokkrum tröppuhlaupum inn í dæmið líka til að drepa lappirnar algjörlega. Var líka algjörlega búin á því eftir klukkutíma og lét það gott heita. Hlakka strax til næsta útihlaups.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dugleg ertu skvísa! ég fór akkurat eftir æfinguna með stelpuna uppá esjuna í góða veðrinu, aaaaaalgjör snilld..

Gaman að sjá þig í  ræktinni í dag ;)

Kristín Arna (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 01:09

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Vá, ég segi bara sömuleiðis duglega kona.... upp á Esjuna eftir hard core brjóst æfingu, það er bara fyrir alvöru Nagla .

Gaman að sjá þig sömuleiðis, reynum endilega að kýla á æfingu saman við tækifæri .

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.5.2008 kl. 09:01

3 identicon

Einhverstaðar heyrði ég líka að það brenndi meiru að hlaupa á malarvegi eða grasi heldur en malbiki, veistu hvort að það sé eitthvað til í því?

Palli (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 13:22

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Og í sandi á strönd.  Ég hef heyrt þetta líka.  Fæturnir þurfa víst að vinna meira þegar undirlagið er ójafnt sem leiðir til meiri brennslu.

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.5.2008 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 549231

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband